Viðskipti innlent

Búið að kyrrsetja eignir Jóns Ásgeirs og Hannesar

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Fyrir um þremur vikum fór skattrannsóknarstjóri fram á að eignir Jóns Ásgeirs, Hannesar, Jóns Sigurðssonar og Skarphéðins Berg yrðu kyrrsettar. Þeir voru allir í forsvari fyrir FL Group á árunum 2006 og 2007 og eru grunaðir um refsiverða háttsemi í tengslum við brot félagsins á lögum um virðisaukaskatt. Skattyfirvöld segja kyrrsetninguna nauðsynlega til að tryggja að fjármunir séu til fyrir hugsanlegri fésekt.

Enn á eftir að þinglýsa kyrrsetningarbeiðnunum á Skarphéðin Berg og Jón Sigurðsson. Af veðbandayfirlitum af fasteignum þeirra má þó sjá að búið er að kyrrsetja þær. Fasteign og bifreið Skarphéðins fyrir 31 milljón króna og tvær fasteignir og bifreiðar í eigu Jóns fyrir rúma 71 milljón króna.

Kyrrsetningarbeiðnir á Jón Ásgeir og Hannes voru þinglýstar um síðustu mánaðarmót, en þeir eru báðir með lögheimili í Bretlandi. Þær eignir Jóns Ásgeirs sem hafa verið kyrrsettar eru eftirtaldar: húseign, metin á 100 milljónir króna af Sýslumanni komi til nauðungasölu, sumarhús í Mjóanesi upp á 10 milljónir, jörð í Skagafirði upp á 14 milljónir, tveir Range Roverar, Hummer, Mini Cooper og Bentley Continental samtals upp á 24 milljónir króna og bankainnstæður fyrir 3,6 milljónir króna. Samtals nema þessar eignir rúmlega 151,6 milljónum króna.

Kyrrsetningarbeiðnin frá Skattrannsóknarstjóra var hins vegar upp á 245 milljónir króna. Mismunurinn er rúmlega 93 milljónir króna. Jón Ásgeir hafði áður sagt í samtali við fréttastofu að samkvæmt upplýsingum frá skattyfirvöldum væri upphæðin sem væri til rannsóknar í hans tilfelli um 7 milljónir króna.

Þær eignir Hannesar sem hafa verið kyrrsettar eru eftirtaldar:

Innstæður á bankareikningum upp á 3,4 milljón króna, Lincoln Navigator metinn á 4 milljónir og Range Rover metinn á sömu upphæð. Samtals 11,4 milljónir króna. Kyrrsetningarbeiðnin frá Skattrannsóknarstjóra var upp á 150 milljónir og er mismunurinn því tæplega 140 milljónir króna.

Unnið er að skýrslu um málið hjá skattrannsóknarstjóra og fá þá gerðaþolar andmælarétt. Skýrslan mun síðan fara til Ríkisskattstjóra sem endurákvarðar opinber gjöld þyki ástæða til þess. Um leið og andmæli skýrslunnar hafa borist skattrannsóknarstjóra er tekin ákvörðun um hvort málin verði send til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. Greiðist sektin ekki að fullu getur gerðaþoli þurft að afplána fangelsisvist, sem nemur að hámarki einu ári.

Jón Ásgeir sagði í samtali við fréttastofu að það væri rétt að eignirnar hefðu verið kyrrsettar. Málið væri skrýtið og stæðist ekki skoðun. Það muni snúast um skattskyldu en ekki skattundanskot. Hann skilji ekki hvernig hann eigi að bera refsiábyrgð á virðisaukaskilum FL Group. Stoðir, áður FL Group, hafi lagt fram tryggingu fyrir skattgreiðslunni. Öll skattskil FL Group hafi verið unnin af fagmönnum sem lutu eftirliti hæfustu endurskoðenda. Þetta hafi ekki verið á hans borði og hann hafi enga hugmynd haft um þau ágreiningsmál um form virðisaukaskattskila milli móður- og dótturfélags sem deilt er um. Samkvæmt lögum verði refsiábyrgð ekki lögð á stjórnarmann vegna skattskila hlutafélags nema stjórnarmaðurinn hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi eða ásetning. Jón Ásgeir segir þau skilyrði augljóslega ekki uppfyllt þar sem hann hafi ekkert vitað um þessi mál.

Skarphéðinn Berg hefur einnig mótmælt kyrrsetningunni. Það staðfesti hann við fréttastofu í dag.

Ekki náðist í Jón Sigurðsson og Hannes Smárason í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×