Innlent

Siv: Breið samstaða um breytt hjúskaparlög

Siv Friðleifsdóttir segir að breið pólitísk samstaða sé um breyta hjúskaparlögum. Stefnt er að því að ný lög verði afgreidd frá Alþingi á næstu vikum.
Siv Friðleifsdóttir segir að breið pólitísk samstaða sé um breyta hjúskaparlögum. Stefnt er að því að ný lög verði afgreidd frá Alþingi á næstu vikum. Mynd/GVA
Stefnt er að því að ný hjúskaparlög verði afgreidd frá Alþingi fyrir sumarleyfi þingsins. En í gær tókst stuðningsmönnum við frumvarpið ekki af afla tillögu þar að lútandi stuðnings á Prestastefnu.

91 prestur og guðfræðingur lagði fram tillögu fyrir Prestastefnu um stuðning við frumvarp dómsmálaráðherra um ein hjúskaparlög í landinu. Ef frumvarp ráðherra nær fram að ganga gilda sömu lög fyrir gagnkynhneigða jafnt sem samkynhneigða, sem þá geta látið gefa sig saman í hjónaband hjá söfnuðum og sýslumönnum.

Þrátt fyrir þennan víðtæka stuðning við tillöguna meðal presta og guðfræðinga, varð ekki einhugur um tillöguna á Prestastefnu og fór svo að lokum að tillögunni, ásamt annarri tillögu um sama efni, var vísað til biskups og kenningarnefndar kirkjunnar með 56 atkvæðum gegn 53. En Geir Waage lagði til að kirkjan afsalaði sér réttindum sínum til lagalegrar vígslu hjóna, þannig að sýslumenn einir gætu gengið frá löggerningnum en prestar gætu áfram blessað hjónabönd.

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, tók þetta mál upp á Alþingi á þriðjudag, en frumvarpið um ein hjúskaparlög er nú til meðferðar hjá allsherjarnefnd eftir eina umræðu á þinginu. Siv sagði breiða pólitíska samstöðu um að taka þetta skref.

Mynd/Rósa
„Enda er þetta skref í takt við vilja þjóðarinnar. Þær kannanir sem hafa verið gerðir sýna að um 70% þjóðarinnar telur að samkynhneigðir eigi bæði að geta gift sig bæði borgarlega og í kirkju eins og gagnkynhneigði. Þannig að það hefur orðið hér mjög mikil og djúpstæð breyting á þjóðarsálinni," sagði Siv.

Hún innti Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, formann allsherjarnefndar, eftir því hvenær nefndin ætli klára umfjöllun sína um málið. Steinunn sagði umsagnaraðila hafa frest til 6. maí til að skila inn athugasemdum, en allir þeir sem hefðu gert það nú þegar væru jákvæðir gagnvart málinu.

„Ég lít svo að það sé mjög skýr og afdráttarlaus vilji Alþingis að við við göngum þessa braut. Ég hef ekki orðið vör við annað innan allsherjarnefndar að það sé þverpólitísk samstaða um að taka málið út og gera það að lögum í vor," sagði Steinunn Valdís.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×