Lífið

Hugleikur gefur út Popular Hits í tveimur löndum á sama tíma

Hugleikur sendir frá sér bókina Popular Hits í næstu viku. Í bókinni myndskreytir Hugleikur vinsæl erlend dægurlög.
Hugleikur sendir frá sér bókina Popular Hits í næstu viku. Í bókinni myndskreytir Hugleikur vinsæl erlend dægurlög.
Hugleikur Dagsson sendir frá sér bókina Popular Hits í næstu viku. Í henni tekur hann fyrir vinsæl erlend dægurlög.

„Bókin er í prentun núna og planið er að hún verði komin út 16. apríl," segir skopmyndateiknarinn og bókaútgefandinn Hugleikur Dagsson.

Hugleikur sendi frá sér bókina íslensk dægurlög fyrir síðustu jól, en í henni myndskreytti hann og sneri út úr íslenskum dægurlögum. Í næstu viku kemur svo út Popular Hits þar sem erlend lög verða fyrir barðinu á skopskyni Hugleiks, sem hefur aflað honum mikilla vinsælda hér heima og erlendis. „Bókin er eins og íslensk dægurlög, nema á ensku. Það er ómögulegt að þýða íslensk dægurlög sem bara Íslendingar þekkja þannig að ég varð að gera erlend dægurlög í staðinn sem heitir þá Popular Hits," útskýrir Hugleikur."

Eins og titillinn gefur til kynna er bókinni einnig ætlað að höfða til útlendinga, sem voru skildir út undan þegar Íslensk dægurlög komu út. „Það er pælingin að selja túristum bókina og senda hana út í heim og sjá hvort einhver vilji kaupa hana," segir Hugleikur. „Reyndar, áður en ég var hálfnaður með bókina, var Finnland búið að kaupa hana þannig að hún kemur út á sama tíma í Finnlandi."

Íslenskt skopskyn virðist falla vel í kramið í Finnlandi. Finnskt forlag hefur gefið út verk Hugleiks og finnska ríkissjónvarpið var fyrsta sjónvarpsstöðin utan Íslands sem tryggði sér sýningarréttinn á Nætur-, Dag- og Fangavaktinni. Það er eins og Íslendingar höfði sérstaklega vel til drykkfelldra þunglyndissjúklinga…

„Það er rétt enda eru Íslendingar drykkfelldir þunglyndis­sjúklingar," segir Hugleikur. „Ég hef alltaf sagt það og alltaf fundist það. Ég er búinn að fara þangað allavega fjórum sinnum til að kynna bækurnar mínar og er hvergi jafn vinsæll. Ég held að það sé vegna þess að Finnarnir eru ofsalega svipaðir okkur. Það hefur kannski eitthvað með kuldann og myrkrið að gera."

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.