Enginn peningur til fyrir Eurovision-myndbandi í ár 23. mars 2010 08:30 Ekkert myndband í ár. Reynir Þór Eggertsson telur Eurovisionmyndböndin hafa litlu skilað og skilur vel að þau Örlygur Smári og Hera Björk skuli ekki ætla að gera slíkt. Hægt sé að eyða peningum í aðra og betri hluti. Þetta verður í fyrsta skipti síðan Anna Mjöll gerði svart/hvítt myndband við Sjúbbídú að framlag Íslands til Eurovision verður ekki með sitt eigið myndband. „
Það er einfaldlega ekki til peningur fyrir slíku. Þannig er allavega staðan í dag. En það getur alltaf breyst þótt ég eigi ekkert von á því,“ segir Hera Björk Þórhallsdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision. Ekkert myndband verður gert við framlag Íslands, Je ne sais quoi, eins og gert hefur verið síðustu tólf skiptin sem Ísland hefur keppt. Myndbönd hafa verið framleidd alveg síðan Anna Mjöll söng Sjúbbídú árið 1996 eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. „Við verðum að skera niður eins og allir aðrir, því miður, en þessi myndbönd hafa ekki alltaf verið að skila því sem þau eiga að skila,“ bætir Hera Björk við. Reynir Þór Eggertsson Eurovision-sérfræðingur segir þetta skiljanlega ákvörðun og tekur undir orð Heru. „Þessi Eurovision-myndbönd hafa verið að fá sáralitla spilun utan heimalandsins og raunar held ég að þessi myndbönd hafi lítið að segja,“ segir Reynir og bendir á að Alexander Rybak, sem vann í keppninni í Moskvu á síðasta ári með miklum yfirburðum, hafi ekki gert neitt myndband. „Það er miklu líklegra til árangurs að vera með öfluga maskínu á Netinu og vera dugleg við að fara í viðtöl á Netinu. Þetta vinnst oft á umræðunni þar sem hún smitar út frá sér.“ Svo Rybak sé aftur notaður sem dæmi þá voru Eurovision-sérfræðingar fyrir löngu búnir að spá honum sigri í keppni og það virtist bera tilætlaðan árangur. En þá aftur að Heru, sem var raunar stödd í London þegar Fréttablaðið náði tali af henni ásamt fatahönnuðinum Birtu Björnsdóttur. Þær voru að leita að efni fyrir kjólinn sem Hera hyggst klæðast þegar stóra stundin rennur upp um miðjan maí í Ósló. „Við fundum ekki rétta efnið heima og ég bauðst bara til að syngja fyrir Iceland Express ef þeir byðu okkur hingað út. Og hérna erum við, þrátt fyrir verkfall og eldgos,“ segir Hera en þær stöllur gera þetta eins ódýrt og mögulegt er, gista á farfuglaheimili við Hyde Park og hugðust fara í verslunarferð niður í Soho-hverfið. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Lífið Sígild sumarterta að hætti Dana Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Lífið Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Lífið Fleiri fréttir Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Allt til alls til að kenna björgun mannslífa Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Sígild sumarterta að hætti Dana Verzló vann MORFÍs Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Fyrsti opinberi kossinn í þrítugsafmælinu Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Lára og lyfjaprinsinn eignuðust stúlku Sjá meira