Útflutningur á hval kærður til Interpol

Fréttablaðið Innlent 19. mars 2010 06:00
Hvalfjörður 2006 Hvalveiðar vekja jafnan athygli hérlendis en dr. Ralf Sonntag, sjávarlíffræðingur hjá IFAW, segir Íslendinga fótumtroða alþjóðalög. fréttablaðið/gva
Hvalfjörður 2006 Hvalveiðar vekja jafnan athygli hérlendis en dr. Ralf Sonntag, sjávarlíffræðingur hjá IFAW, segir Íslendinga fótumtroða alþjóðalög. fréttablaðið/gva

Alþjóða dýraverndunarsjóðurinn (IFAW) hefur kært útflutning á hvalaafurðum frá Íslandi til þriggja landa til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), Alþjóðalögreglunnar (Interpol) og Alþjóða tollastofnunarinnar.

Afurðirnar sem um ræðir eru 134 tonn af frystum hvalaafurðum til Japans og 250 kíló af frystu hvalkjöti til Lettlands í janúar síðastliðnum auk tveggja sendinga af hvalmjöli til Danmerkur í janúar og mars árið 2009. Tilefni kærunnar eru upplýsingar um útfluttar vörur frá Hagstofu Íslands. Sjóðurinn hefur einnig sent fjórum skrifstofum CITES (samningur um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu) upplýsingar um viðskiptin.

Sigursteinn Másson, talsmaður IFAW á Íslandi, segir málið grafalvarlegt í ljósi þess að lög og reglur ESB banni alfarið viðskipti sem þessi, auk CITES-sáttmálans sem Ísland, Lettland og Danmörk eru aðilar að. „Þarna er í raun um mjög alvarlegan atburð að ræða út frá alþjóðalögum og þess vegna vekur IFAW athygli á þessu og kæra til viðeigandi yfirvalda."

Sigursteinn segir engu skipta þó að um tiltölulega lítið magn hvalaafurða sé að ræða og IFAW hafi ekki fengið staðfest hverjir standa að baki útflutningnum héðan.

„Við gerum hins vegar ráð fyrir því að yfirvöld fari ofan í saumana á því hverjir eru að brjóta lög og reglur." Hann segir að yfirvöld í Lettlandi og Danmörku hafi ekki haft upplýsingar um viðskiptin. „Þar er þetta litið mjög alvarlegum augum og ég tel að það verði tekið hart á þessu."

Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., staðfestir að „smáræði" af hvalaafurðum hafi verið flutt út til Japans í janúar. Hins vegar veit hann ekki hver stendur að baki viðskiptunum til Lettlands og Danmerkur.

„Það kæmi mér ekkert á óvart ef ég kæmist að því að Sigursteinn stæði sjálfur fyrir þessu. Þessir menn gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vekja athygli á sér," segir Kristján.

Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Félags hrefnuveiðimanna, segir að ekkert hrefnukjöt hafi verið flutt út.

„Hins vegar er um svo lítið magn að ræða að ekki er hægt að útiloka að Letti hafi keypt kjöt hérlendis og sent til heimalandsins."

Hagstofa Íslands staðfesti við Fréttablaðið að upplýsingar IFAW um útflutninginn eru allar nákvæmar.

svavar@frettabladid.is



Sigursteinn Másson
Sigursteinn Másson

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Útflutningur á hval kærður til Interpol