Lífið

Í fótspor Friðriks Þórs

Kvikmyndagerðarmaðurinn ungi sýnir heimildarmynd sína, Hringurinn II, 2. mars næstkomandi.fréttablaðið/valli
Kvikmyndagerðarmaðurinn ungi sýnir heimildarmynd sína, Hringurinn II, 2. mars næstkomandi.fréttablaðið/valli

Eysteinn Guðni Guðnason frumsýnir heimildarmynd sína, Hringurinn II, 2. mars, nákvæmlega 25 árum eftir að Friðrik Þór Friðriksson frumsýndi mynd sína Hringurinn. Sú mynd var tekin upp í bíl sem ók hringinn í kringum landið án þess að leikarar kæmu við sögu og gerði Eysteinn slíkt hið sama síðasta haust.

Myndin verður sýnd á hvor sínum húsveggnum fyrir utan heimili Eysteins á Laugaveginum þar sem óprúttnir aðilar skvettu nýverið rauðri málningu. „Ég er búinn að hafa augastað á þessum veggjum sem eru hvor á móti öðrum því þetta er mynd með tveimur römmum, einum að framan og einum aftan á,“ segir Eysteinn, en myndin var tekin upp þannig að einni myndavél var beint fram veginn og annarri aftur á bak meðan á ferðalaginu stóð. Einn rammi var tekinn upp á tíu metra fresti. „Þetta er óhefðbundin mynd og þar sem bíóin bjóða ekki upp á tvö tjöld í sama salnum ákvað ég að finna aðra leið til að sýna hana.

Þetta er kjörin staðsetning á Laugaveginum og mér varð hugsað til hennar. Ég var að hugsa að það þyrfti að fara að mála þessa veggi og svo skvetta þeir þessari málningu þarna, þannig að það var alls ekkert svo slæmt. Það gaf mér tilefni til að mála veggina aftur,“ segir hann.

Eysteinn segist ekki vita hverjir voru þarna að verki en tekur fram að hann sé alls enginn útrásarvíkingur. Hann var fljótur að mála yfir skvettuna, enda segir hann það afar mikilvægt. „Það er tvennt sem maður græðir á því. Maður tekur burtu tilganginn hjá kroturunum og kemur í veg fyrir áframhaldandi krot, því ef það kemur eitt þá laðar það að sér fleiri.“ - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.