Kötturinn sem heilsar dauðanum

Vísir Erlent 04. febrúar 2010 14:00
Kötturinn Óskar í Steere House.
Kötturinn Óskar í Steere House.
Óli Tynes skrifar:

Köttur á bandarísku hjúkrunarheimili fyrir gamalt fólk með mikil elliglöp hefur nú spáð rétt fyrir um dauða fimmtíu sjúklinga.

Starfsfólk á Steere House hjúkrunarheimilinu tók köttinn Óskar að sér þegar hann var kettlingur. Óskar er nú fimm ára gamall.

Langt er síðan starfsfólkið fór að taka eftir því að Óskar virtist finna á sér þegar sjúklingar voru að deyja. Óskar er alla jafna ekkert mannblendinn og reikar einn með sjálfum sér um ganga heimilisins.

Ef hinsvegar einhver er að deyja hoppar hann upp í rúmið hjá viðkomandi og hringar sig uppvið hann þartil hann skilur við.

Dr. David Dosa læknir við heimilið og aðstoðarprófessor við Brown háskólann vakti fyrst athygli á Óskari með grein sem hann skrifaði um hann í læknaritið New England Journal of Medicine árið 2007.

Þá hafði Óskar spáð rétt fyrir um dauðsföll í tuttugu og fimm tilfellum. Í dag hefur sú tala tvöfaldast.

Í nokkrum tilfellum hefur Óskar greint betur en starfsfólkið hvað var að gerast. Eitt sinn settu hjúkrunarkonur hann upp í rúm hjá sjúklingi sem þær héldu að væri að deyja.

Óskar stökk fram úr rúminu og fór til sjúklings á annarri stofu. Sá sjúklingur dó um kvöldið. Hinn sjúklingurinn dó tveim dögum seinna og þá var Óskar kominn upp í rúm til hans.

David Dosa kann enga áreiðanlega skýringu á þessum hæfileika kattarins. Hann veltir upp þeim möguleika að það kunni að vera lyktarskynið. Sagt er að hundar geti fundið lykt af krabbameini.

Dosa segir mögulegt að Óskar finni lykt af ketónum sem er sérstök lykt sem dyjandi frumur gefa frá sér.

Dosa læknir og hjúkrunarfólkið er nú orðið svo visst um greiningar Óskars að það er farið að láta ættingja vita ef hann hringar um sig í rúmi hjá einhverjum.

Ætla mætti að ættingjar og vinir sjúklinga litu á Óskar sem eitthvert óheillakvikindi, en svo er alls ekki.

Þvert á móti segir Dosa að það sé ættingjunum huggun að vita að dýrið hafi hringað sig hjá ástvininum á hinstu stundu þegar þeir gátu ekki verið þar sjálfir.

Óskars sé meira að segja oft getið hlýlega í dánartilkynningum og minningarræðum.



Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 12. feb. 2012 03:13

Whitney Houston látin

Söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Talskona hennar staðfestir þetta í sa...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 23:30

Býður ástföngnum pörum að skoða skolphreinsistöð

Viltu gera eitthvað nýtt á Valentínusardeginum? Hvað með að bjóða makanum í skolphreinsist...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 22:00

Norður-kóreskir harmonikkuspilarar fara sigurför um heiminn

Norski tónlistarmaðurinn Morten Traavik gerði skemmtilega menningarlega uppgötvun þegar ha...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 16:47

Fagna byltingarafmæli með því að boða til mótmæla

Ár er liðið frá því Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hrökklaðist frá völdum eftir mótmæ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:08

Blaðamenn breska blaðsins The Sun handteknir

Breska götublaðið The Sun er í uppnámi eftir að lögreglan í Lundúnum handtók fimm blaðamen...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:04

Hershöfðingi myrtur í Sýrlandi

Byssumenn skutu og myrtu sýrlenskan hershöfðingja fyrir utan heimili sitt í Damascus, höfu...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 13:36

Játar að hafa rænt barni fyrir 23 árum og alið upp sem sitt eigið

Ann Pettway hefur játað að hafa rænt nítján daga gömlu stúlkubarni af spítala í Harlem ári...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:04

Ætlaði að drepa Obama

Tuttugu og tveggja ára maður frá Úsbekistan hefur játað að hafa skipulagt að drepa Barack ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:02

Saudí-Arabar vilja að ályktun gegn Sýrlandi verði samþykkt

Saudí-Arabar reyna nú að fá Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að samþykkja ályktun þar...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 06:00

Stanslausar árásir í heila viku

Tvær sprengjur sprungu við herstöð í borginni Aleppo og ollu miklu tjóni. Þar í borg hefur...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 05:00

Lögregla í átökum við mótmælendur

Þótt þjóðstjórnin í Grikklandi hafi samþykkt ný niðurskurðaráform er enn eftir að tryggja ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 04:00

Lokaður heimur opnast

Rússneskum vísindamönnum hefur tekist að bora leið niður í stórt stöðuvatn sem hefur verið...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Kötturinn sem heilsar dauðanum