Lífið

Baltasar gerir kvikmynd eftir einleik Jóns Atla

Baltasar Kormákur ætlar að gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla, Djúpinu. Sá einleikur er innblásin af ótrúlegu þrekvirki Guðlaugs Friðþórssonar sem komst einn lífs af þegar Hellisey VE-503, sökk við Vestmannaeyjar í mars 1984.
Baltasar Kormákur ætlar að gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla, Djúpinu. Sá einleikur er innblásin af ótrúlegu þrekvirki Guðlaugs Friðþórssonar sem komst einn lífs af þegar Hellisey VE-503, sökk við Vestmannaeyjar í mars 1984.

Baltasar Kormákur hyggst gera kvikmynd sem verður lauslega byggð á einleik Jóns Atla Jónassonar, Djúpinu. Hann sótti innblásur sinn til ótrúlegrar þrekraunar Guðlaugs Friðþórssonar sem synti í land eftir að skip hans, Hellisey VE-503, fórst við Vestmannaeyjar aðfaranótt 11.mars árið 1984. Fjórir vinir Guðlaugs fórust en hann komst einn lífs af eftir að hafa synt rúma fimm kílómetra og verið sex tíma í ísköldu Atlantshafinu.

Baltasar viðurkennir að hann hafi lengi dreymt um að gera mynd sem byggði á þessum atburðum. Hann hafi hins vegar ekki fundið neinn flöt á þeim fyrr en hann sá æfingu á Djúpinu eftir Jón Atla með Ingvari E. Sigurðssyni í hlutverki skipsbrotsmannsins í Borgarleikhúsinu. Hann tekur hins vegar fram að kvikmyndin verði sjálfstætt verk þótt vissulega byggi það á einleiknum og atburðunum við Stórhöfða. „Ég talaði við Jón Atla strax eftir æfinguna og við fórum að vinna handritið. Sú vinna hefur bara gengið það vel að þetta er að verða að veruleika," segir Baltasar en myndin fékk vilyrði fyrir styrk hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands nýverið og er nú beðið svara hjá Norræna kvikmyndasjóðnum.

Baltasar segir enga ákvörðun hafa verið tekna um hvaða leikarar komi til greina í aðalhlutverkið en útilokaði þó Ingvar E. Sigurðsson. „Ég ætla samt ekki að fara binda þetta við eitthvað aldursbil eða útlit en Ingvar hentar einfaldlega ekki í þetta hlutverk," segir Baltasar en viðurkennir um leið að hann sé með nokkra leikara í sigtinu.

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá stóð til að ráðast í gerð kvikmyndar eftir bók Arnaldar Indriðasonar, Grafarþögn, en leikstjórinn segir hana hafa verið setta til hliðar um stundarsakir. „Arnaldur er að skrifa handritið en vegna anna hjá honum hefur það dregist aðeins á langinn. Þannig að þetta verkefni fer framfyrir röðina."-freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×