Good Heart seld til 22 landa 10. nóvember 2009 06:00 Seld víða Paul Dano og Brian Cox fara með aðalhlutverkin í kvikmyndinni The Good Heart. „
Þetta er viðurkenning um að myndin sé góð,“ segir Skúli Malmqvist hjá framleiðslufyrirtækinu Zik Zak. Dreifingarrétturinn á nýjustu kvikmynd Dags Kára Péturssonar, The Good Heart, hefur verið seldur til 22 landa. Á meðal þeirra eru Bandaríkin, Frakkland, Þýskaland, Japan, Kanada, Argentína og öll Norðurlöndin. Myndin var frumsýnd á Toronto-hátíðinni í Kanada 11. september og í framhaldinu hófst sala á dreifingarréttinum víða um heim. „Það hefur verið mikill samdráttur í sölu á dreifingarrétti kvikmynda síðastliðin tvö ár. Því miður eru tölurnar töluvert lægri en fyrir tveimur árum,“ segir Skúli, sem er engu að síður ánægður með þá samninga sem náðst hafa. Um þessar mundir stendur yfir sölumarkaðurinn American Film Market, sem er sá stærsti í Bandaríkjunum og þá munu líklega fleiri þjóðir bætast við þær 22 sem þegar eru komnar um borð. Skúli vonast eftir því að ein þeirra sem bætist við verði Bretland. Með aðalhlutverkin í The Good Heart fara Brian Cox og Paul Dano sem hafa báðir getið sér gott orð í Hollywood. Enn á eftir að taka myndina til almennra sýninga en Frakkar verða líklega fyrstir til þess í byrjun næsta árs. Frumsýning í Bandaríkjunum er síðan fyrirhuguð næsta vor. Viðræður standa nú yfir um frumsýningardag myndarinnar hér á landi. Mögulega verður hann á þessu ári en líklegast er þó að hann verði á nýju ári. - fb
Mest lesið „Það spurði þig enginn“ Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Lífið Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Klippt út af myndinni Lífið Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Lífið Gáfu dótturinni þrjú nöfn Lífið Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Lífið Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Tónlist Fleiri fréttir Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu Fyrsta starfið að fara út með hund Madonnu Tito Jackson er látinn „Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?“ Ratleikur sem endaði með óvæntu brúðkaupi Ljósmyndaþáttur Ragnars Axelssonar: „Fjöllin hafa vakað lengur en í þúsund ár“ Sex heilnæm heilsuráð inn í haustið Krakkatía vikunnar: Litir, ljón og sjón Ástin blómstrar hjá Erpi og nýju kærustunni á Ítalíu Sjá meira