Kaupa meiri tónlist en hinir 3. nóvember 2009 01:00 Ólöglegt niðurhal Þeir sem stela tónlist af netinu kaupa tónlist fyrir 15.700 krónur á ári. Hinir kaupa fyrir níu þúsund krónur.Fréttablaðið/valgarð
Þeir sem stela tónlist af netinu kaupa líka tónlist fyrir jafnvirði 15.700 króna að meðaltali á ári. Þeir sem segjast ekki stunda ólöglegt niðurhal kaupa tónlist fyrir rúmlega níu þúsund krónur á ári. Þetta kemur fram í nýrri könnun í Bretlandi, sem BBC greinir frá. Af þeim sem tóku þátt í könnuninni kvaðst tæplega einn af hverjum tíu frá sextán ára aldri til fimmtugs stela tónlist af netinu. Hins vegar sögðust átta af hverjum tíu í sama aldursflokki kaupa geisladiska, hljómplötur og tónlist á MP3-formi. Alls tóku 1.008 manns þátt í vefkönnuninni, sem Demos annaðist. Helmingur þátttakenda sagðist hlusta á tónlist á Youtube og 22 prósent hlustuðu á vefvarp. Aðeins fjögur prósent þátttakenda kváðust nota skráarskiptaforritið Napster, sem eitt sinn bar höfuð og herðar yfir önnur slík forrit. 75 prósent svarenda á aldrinum 16 til 24 ára sögðust reiðubúnir til að borga fyrir tónlist á MP3-formi. Óskaverð svarenda fyrir eitt lag var 45 pens, jafnvirði 92 króna. Aðeins tvö prósent voru reiðubúin að greiða meira en pund, 204 krónur. Sem dæmi má nefna að vinsælasta lagið í Bretlandi um þessar mundir, Fight for this Love með Cheryl Cole, kostar 203 krónur hjá itunes og 162 krónur hjá Amazon. - bs
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Fleiri fréttir Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana „Þrátt fyrir allan þennan vígbúnað þá er þetta mjög vinalegt“ „Honum fylgir auðvitað ákveðinn ófyrirsjáanleiki“ Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Sjá meira