Kvikmyndafyrirtæki læsir klóm í Konur Steinars Braga 28. október 2009 07:00 Steinar Bragi bjóst aldrei við því að skáldsaga hans Konur yrði kvikmynduð en Þórir Snær Sigurjónsson og ZikZak hafa tryggt sér kvikmyndaréttinn að henni.
Framleiðslufyrirtækið ZikZak hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að bók Steinars Braga, Konur, sem kom út á síðasta ári. Hún fékk frábæra dóma og var af mörgum talin bók ársins. Þórir Snær Sigurjónsson, framleiðandi hjá ZikZak, var því að vonum ánægður með að klófesta verkið. „Hún var náttúrlega afar fersk þegar hún kom út og þarna eru miklir möguleikar á túlkun fyrir hvíta tjaldið,“ segir Þórir en ZikZak hefur verið öflugt á þeim vettvangi að tryggja sér kvikmyndarétt að íslenskum skáldverkum. „Við erum alltaf að skoða bækur en þessi stóð óneitanlega upp úr í fyrra,“ segir Þórir og útilokar ekki að kvikmyndin verði jafnvel gerð á ensku. „Nú fer hún í venjulegt ferli hjá okkur og kannski í smá forgang því þetta er verk sem við erum ákaflega hrifnir af. Nú er bara að finna rétta fólkið, handritshöfunda og leikstjóra, til að koma þessu upp á hvíta tjaldið.“ Bókin segir frá konu sem flytur til Íslands og fær í gegnum kunningja sína í bankageiranum glæsilega risíbúð í Skuggahverfinu. Smám saman uppgötvar hún að ekki er allt sem sýnist, að hún er fangi íbúðarinnar. Þórir segir að það hafi einmitt verið þessi drungalega stemning sem hafi fangað hann fyrst. „Mín túlkun er sú að Steinar Bragi sé þarna að skrifa um hin ósýnilegu landamæri sem minnihlutahópar þurfa einmitt alltaf að kljást við.“ Steinar Bragi var að vonum ánægður með samninginn en bætir því við að þessi draumur geti auðveldlega snúist upp í martröð. „Það fer auðvitað eftir því hvernig kvikmyndin kemur út,“ segir Steinar Bragi og bætir því við að þreifingar um þessi mál hafi hafist í febrúar. Þá hafi hann verið innilokaður í Kanada vegna efnahagshrunsins á Íslandi og nærst nær eingöngu á ókeypis kebab. „Það hvarflaði annars aldrei að mér að þessi bók gæti orðið að kvikmynd. Ég held líka að ef maður sjái það eitthvað fyrir sér gæti maður bara alveg eins skrifað kvikmyndahandrit,“ segir Steinar, sem hyggst ekki vera með puttana í kvikmyndagerðinni sjálfur. „Nei, þeir hjá ZikZak eru djúpir og snjallir. Vonandi fær maður samt að vera með.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari Lífið Fleiri fréttir „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Sjá meira