Lögregla tók ekki sýni af bíl Rannveigar 7. október 2009 12:13
Lögregla tók ekki sýni af lakkleysi sem var notaður í skemmdarverkum á bílum forstjóra álversins í Straumsvík og Orkuveitu Reykjavíkur. 27 skemmdarverk með málningu á heimilum útrásar- og stóriðjuforkólfa eru enn óupplýst. Eins og fram kom í fréttum helgarinnar lenti ætandi lakkleysir rétt undir auga Rannveigar Rist forstjóra álversins í Straumsvík eftir árás skemmdarvarga á heimili hennar og fjölskyldubíl í ágúst. Þann fimmta ágúst hafði grænni málningu verið skvett á heimili Rannveigar í skjóli nætur. Þegar Rannveig kom út morguninn eftir og opnaði dyrnar að fjölskyldubílnum skvettist lakkleysir úr hurðafalsi á andlit hennar, á höku og undir auga. Ekki er vitað með vissu hvaða efni var sett á bílinn, en efnið mun þó hafa verið svo ætandi að það át sig inn í húð Rannveigar svo djúpt sár varð eftir dropann sem skilur eftir sig ör. Ekki verður upplýst hvaða efni þetta var því samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ekki tekið sýni af efninu. Þau hlaupa nú á tugum skiptin sem forkólfar útrásar og stóriðju hafa vaknað upp að morgni og séð að málningu hafði verið skvett á heimili þeirra. Lögregla rannsakar nú 27 slík mál, það fyrsta er frá 29. maí þegar málningu var slett á heimili Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka. Sá sem stýrir rannsókninni hjá lögreglu vildi ekkert um það segja hvernig gengi, þegar fréttastofa hafði samband í morgun. Hann vildi ekki upplýsa hvort einhver eða einhverjir væru grunaðir um þessa verknaði. Málið er því enn óupplýst.
Mest lesið Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent Fleiri fréttir Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Sjá meira
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent