Var eitt sinn híbýli róna 26. september 2009 06:00 „
Þetta er nú sennilega það hús í Reykjavík sem er frægast allra húsa," segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sem fylgdist með slökkvistarfinu. „Það var franskur konsúll, Brillouin, sem hafði hér aðsetur, sem reisti það upphaflega fyrir nákvæmlega hundrað árum og það var kallað konsúlshús þá. Hann fór fljótlega og 1914 keypti það Einar Benediktsson skáld og bjó hér í nokkur ár. Síðan voru ýmsir eigendur, Títanfélagið átti það um skeið. Síðan Matthías Einarsson læknir, og Louisa Matthíasdóttir listmálari ólst hér upp," segir Guðjón. Rétt fyrir seinni heimsstyrjöld keyptu Bretar húsið og gerðu að sendiráðsbústað. „Þá komu hingað mjög margir merkir menn, Churchill og Marlene Dietrich. Það er talið að hún hafi sungið í húsinu. Síðan var hér sendiherra eftir stríð sem varð var við svo mikinn draugagang að hann fór fram á að húsið yrði selt, og það varð. Síðan eiga það aðrir aðilar og Reykjavíkurborg kaupir það á sjötta áratugnum. Þá var það komið í mikla niðurníðslu og höfðust þar jafnvel rónar við. Þá var ákveðið að gera það upp og gera að móttökuhúsi fyrir Reykjavíkurborg. Það var tekið í notkun sem slíkt á dögum Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra á sjöunda áratugnum," segir Guðjón. Síðan hefur Höfði verið opinbert móttökuhús Reykjavíkurborgar og þar borið til margt merkilegt. „Langfrægastur er leiðtogafundurinn 1986 og birtust myndir af honum um allan heim. En annar atburður sem er mjög merkilegur er að þangað komu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna 1991 og Íslendingar urðu fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði þessara ríkja. Sú athöfn fór fram í Höfða og húsið er því mikilvægt í sögu Eystrasaltsríkjanna líka," segir sagnfræðingurinn. Í húsinu voru mjög merk málverk eftir þekktustu listmálara Íslands. Þar var og geymd gestabókin frá dögum leiðtogafundarins, með undirskriftum Reagans og Gorbatsjovs og allra sem komu með þeim, á einni blaðsíðu. „Henni var nú bjargað, sem betur fer," segir Guðjón, glaður í bragði.
Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Erlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Fleiri fréttir Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sjá meira