Lífið

Ósáttir við gagnrýni Hollywood Reporter

Gagnrýnandi Hollywood Reporter er ekki hrifið af The Good Heart eftir Dag Kára. Myndin hefur fengið misjafnar viðtökur gagnrýnenda eftir frumsýningu á kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Gagnrýnandi Hollywood Reporter er ekki hrifið af The Good Heart eftir Dag Kára. Myndin hefur fengið misjafnar viðtökur gagnrýnenda eftir frumsýningu á kvikmyndahátíðinni í Toronto.

„Það er eitthvað mikið að hjá þessum manni, það er einfaldlega ekki hægt að hata þessa mynd svona mikið. Þetta er létt og skemmtileg mynd og þessi dómur er algjörlega úr takti við allt raunveruleikaskyn,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson, einn af framleiðendum The Good Heart eftir Dag Kára Pétursson.

Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir fullum sal á föstudaginn þar sem áhorfendur klöppuðu henni lof í lófa. Jákvæðir dómar hafa birst á netinu, meðal annars á vefsíðunni Twitch, sem nýtur mikilla vinsælda meðal áhugafólks um sjálfstæða kvikmyndagerð, og veftímaritinu Varsity, þar sem myndinni er hrósað fyrir frumleika og trúverðugleika.

Gagnrýnandinn Kirk Honeycutt hjá tímaritinu Hollywood Reporter fer hins vegar ekki fögrum orðum um íslensku myndina sem skartar þeim Brian Cox og Paul Dano í aðalhlutverkum. Honum þykir hún of fyrirsjáanleg og að leikararnir þrír reyni og reyni að láta myndina öðlast líf en hafi ekki erindi sem erfiði. „Að sjálfsögðu þurfa ekki allir að elska myndina, en það að hún skuli hafa farið svona rosalega í taugarnar á manninum er mér fyrirmunað að skilja.“

Dagur Kári Pétursson
Kirk Honeycutt virðist reyndar ekkert sérstaklega vel við íslenskar myndir sem sýndar eru í Norður-Ameríku. Hann skrifaði ansi neikvæðan dóm um kvikmynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven, fyrir þremur árum þegar hún var sýnd á Sundance-hátíðinni. Þórir viðurkennir að hann sé gáttaður á þessari framgöngu gagnrýnandans. Þeir bíði hins vegar eftir úrskurði Screen Daily og Variety sem þykja með þeim virtustu í þessum bransa. „Og svo maður vitni bara í meistara Woody Allen: Ef mér tekst að láta einni manneskju líða illa yfir myndinni minni, þá líður mér vel.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×