Innlent

Bloggskrif kennara valda fjaðrafoki

Aðstoðarskólastjóri segir bloggfærslu heimiliskennarans afar óheppilega.fréttablaðið/vilhelm
Aðstoðarskólastjóri segir bloggfærslu heimiliskennarans afar óheppilega.fréttablaðið/vilhelm

„Málið verður tekið fyrir innan skólans. Það er spurning hversu vel þeir sem hafa þessar skoðanir eru til þess fallnir að vinna samkvæmt jafnréttisáætlun Reykjavíkurborgar, Hagaskóla eða annarra skóla,“ segir Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla. Bloggfærsla Guðrúnar Þóru Hjaltadóttur, sem kennir heimilisfræði við skólann, um Pólverja vakti athygli í gær.

Í færslunni segir Guðrún að of margir Pólverjar brjóti af sér miðað við höfðatölu hér á landi. Einhverjir þeirra þiggi bætur og vinni samtímis og þeir svindli á kerfinu með því að skrá sig ekki í sambúð til að fá hærri bætur.

Guðrún spyr hvort ekki sé hægt að senda þessa brotamenn heim, þótt þeir hafi ekki fengið dóm. Það sé ódýrara en að láta þá hálffylla íslensk fangelsi. „Svo finnst mér lágmark að þeir reyni að læra íslensku svo þeir geti gert sig skiljanlega. Það er hér fólk sem búið er að vera í yfir þrjú ár og talar ekki orð í íslensku,“ segir í færslunni.

Að sögn Ómars talar Guðrún ekki í nafni Hagaskóla. „En það er ákaflega óheppilegt að starfsmenn uppeldisgeirans hafi svona skoðanir, og líka að þeir finni hjá sér þörf til að viðra þær,“ segir Ómar. Auðvelt sé að finna út að Guðrún sé starfsmaður Hagaskóla þótt það komi ekki fram á síðunni.

Nokkur börn af pólskum uppruna stunda nám við Hagaskóla. Guðrún Þóra segir að bloggfærslur sínar komi kennslunni ekkert við. Sjálf þekki hún dæmi um öll atriðin sem hún tali um í færslunni. „Ég skrái mig ekki sem kennara á bloggsíðunni. Utan skólans er ég bara persóna, sem má alveg hafa skoðun á því hverjir búa í landinu sem ég borga skatta í,“ segir Guðrún Þóra Hjaltadóttir, sem þó hafði í gærkvöldi fjarlægt færsluna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×