Innlent

Um þúsund skjálftahús eru enn óbætt

Friðjón er langeygur eftir úrbótum á húsi sínu. Ekki liggur enn fyrir mat við viðgerðarkostnað. Tæplega ár er liðið frá Suðurlandsskjálftanum.fréttablaðið/stefán
Friðjón er langeygur eftir úrbótum á húsi sínu. Ekki liggur enn fyrir mat við viðgerðarkostnað. Tæplega ár er liðið frá Suðurlandsskjálftanum.fréttablaðið/stefán

Enn á eftir að bæta um eitt þúsund hús eftir Suðurlandsskjálftann sem varð í fyrra. Alls hefur verið tilkynnt um tjón á um 3.600 húsum og er búið að bæta 2.665 þeirra.

Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar Íslands, segir verkefnið gríðarlega umfangsmikið. Um fjörutíu til fimmtíu manns hafi verið í því að meta hús frá skjálftanum sem varð 29. maí í fyrra.

„Við erum ekki að biðja um mikið, aðeins að húsið verði gert íbúðarhæft á ný," segir Friðgeir Jónsson á Selfossi. Hús hans skemmdist mikið í Suðurlandsskjálftanum í fyrra, en hann hefur ekki fengið úrlausn sinna mála. Ekki liggur enn fyrir kostnaðarmat á viðgerðum.

Við rannsókn kom í ljós að jarðvegurinn undir húsinu hefur sigið umtalsvert, sautján sentimetra þar sem mest er. Friðgeir segir að fyrsta mat hafi verið viðunandi en eftir að fleiri verkfræðingar skoðuðu húsið hafi það lækkað um tíu milljónir. „Nú vilja þeir bora holur í gólfplötuna, eina á hvern fermetra, og dæla steypu undir húsið. Það þýðir 170 holur," segir Friðgeir.

Þar sem húsið hvílir ekki á réttum undirstöðum er allur burður úr lagi genginn og sést víða hvernig veggirnir hafa skekkst. Sólhýsi, sem hvílir á palli fyrir aftan hús, er að brotna frá húsinu og er stór sprunga á samskeytunum. Friðgeir segir málið hafa dregist fram úr hófi.

„Við leggjum áherslu á að þetta klárist með hraði. Við þurfum að eiga við eldri mál, nýjar tilkynningar og svokölluð viðbótartjón, en þá hafa meiri skemmdir komið í ljós. Sú vinna mun líklega halda áfram næstu árin en við vonumst til að klára þessi 1.000 hús sem út af standa á næstu mánuðum," segir Ásgeir. Hann reiknar með að heildarkostnaður við verkefnið verði um 7,6 milljarðar, „jafnist á við eins og ein jarðgöng". Reikna megi með að matskostnaður sé um tíu prósent af tjónakostnaði






Fleiri fréttir

Sjá meira


×