Innlent

Leikurinn um gullið mögulega sýndur á Miklatúni

Nú er í athugun hvort hægt sé að sýna úrslitaleikinn á milli Íslands og Frakklands á risaskjá í Miklatúni.

Leikurinn fer fram klukkan 7.45 á sunnudagsmorguninn en kvöldið áður fara fram stórtónleikar á Miklatúni í boði Rás 2 og Landsbankans.

Þar verður risaskjár sem möguleiki er á að nota morguninn eftir þegar Íslendingar leika um gullið í Peking.

Málið er enn á frumstigi en Höfuðborgarstofa, umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Rás 2 og Landsbankinn eru að kanna hvort eitthvað standi í vegi þess að hugmyndin verði að veruleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×