Átök skynsemi og trúar

Fréttablaðið Fastir pennar 23. júní 2008 06:30
Guðmundur Andri Thorsson
Guðmundur Andri Thorsson
Guðmundur Andri Thorsson skrifar:
Í síðustu Lesbók birtist grein eftir Björgu Hjartardóttur kynjafræðing þar sem hún skrifar í nokkrum umvöndunartóni um Hirsi Ali, sómalska rithöfundinn sem skorið hefur upp herör gegn kvennakúgun í trúræðissamfélögum íslams. Tilefni greinarinnar eru verðlaun sem hún deildi nýlega með Taslimu Nasreen frá Bangla Desh og kennd eru við Simone de Beauvoir. Björg segir að sér kæmi ekki á óvart að Simone hafi snúið sér við í gröfinni yfir þessum verðlaunaveitingum, sem er nokkuð fast að orði kveðið um konu sem hætt hefur lífi sínu til að berjast gegn nauðungarhjónaböndum barnungra stúlkna, umskurði stúlkubarna og öðrum ósiðum sem fylgja trúræði og feðraveldi. Verðlaunin eru að sögn Bjargar veitt „þeim einstaklingum sem lagt hafa sitt á vogarskálarnar í baráttunni fyrir frelsi kvenna víða um heim". Björg virðist ekki telja að Hirsi Ali - eða Taslima - uppfylli þau skilyrði.



Betur settar?

Orð eins og „trúræði", „feðraveldi", „mannréttindi" og „kvenréttindi" sjást lítt í grein Bjargar en aftur á móti verður henni tíðrætt um „staðalmyndir" og náttúrlega „orðræðu". Hún þrástagast á því að Hirsi Ali hafi „tileinkað sér" tiltekna orðræðu, sem er sérkennilegt orðalag einnar menntakonu um aðra. Er átt við að Hirsi Ali tjái sig ekki sjálf um eigin hugsanir en hafi lært eins og páfagaukur að tala á tiltekinn hátt?

Björg telur að málflutningur Ali sé vatn á myllu þeirra sem halda á lofti staðalmyndum um önnur samfélög en vestræn og hún fari villur vegar þegar hún hylli vestræna menningu fyrir tjáningarfrelsi. Björgu þykir „mikilvægt að hafna þeirri tilhneigingu sem Hirsi Ali hefur til að gefa í skyn að sumar konur, í þessu tilfelli múslimskar konur, væru betur settar ef menning sú sem þær fæddust inn í myndi nánast leggjast af."
Eigum við þá að draga þá ályktun að þær séu betur settar undir trúræði og feðraveldi?

Virðing fyrir menningu annarra er vissulega dyggð og hæfileikinn til að setja sig í spor annarra með mikilsverðustu mannlegu eiginleikum ásamt forvitni og löngun til að skilja aðra. En öllu má ofgera. Og það ómerkir ekki málflutning Hirsi Ali hverjir taka undir hann. Okkur ber að hlusta á hana sjálfa.





Mannréttindi eru algild
Sé það satt sem Björg segir að „femínískar fræðikonur" virðist ekki í hópi öflugustu stuðningsmanna hennar sætir það furðu því að þó hún tali tæpitungulaust þá berst hún fyrir algildum kvenréttindum og mannréttindum - réttindum sem eru jafn mikilsverð í Afríku og í Hollandi.
Og þegar hún heldur því fram að hlutskipti kvenna sé betra á vesturlöndum en víða annars staðar þá hefur hún sitthvað til síns máls, þó að aldrei skuli alhæfa og hver og ein fjölskylda sé sértök. Og þar kemur til kastanna enn eitt lykilorðið sem Björg sneiðir hjá. Sekúlarismi.
Við erum svo lánsöm hér að gamla testamentið er ekki lagt til grundvallar nokkrum hlut nema hjá stöku trúfífli. Það er ekki vegna yfirburða okkar heldur eru þetta harðsótt réttindi sem margir hafa látið lífið fyrir.

Taslima Nasreen sem deilir verðlaununum með Hirsi Ali er landflótta og dæmd til dauða vegna skrifa sinna um hlutskipti kvenna í Bangla Desh en áður en hún lagði ritstörf fyrir sig starfaði hún sem kvensjúkdómalæknir í landi sínu. Björg telur ef til vill að Simone de Beauvoir snúist annan hring í gröfinni vegna þess að í sínu nafni sé slík kona heiðruð - það er ekki gott að segja, henni þykir ekki taka því að ræða um hana. En Taslima hefur skrifað á heimasíðu sína, og kann að vera fróðlegt fyrir Björgu:

„Mannkynið stendur frammi fyrir óvissu og líkur á nýjum deilum og átökum grúfa yfir okkur. Átökin eru milli tveggja ólíkra meginhugmynda, sekúlarisma og bókstafstrúar. Ég er ekki sammála þeim sem telja að átökin standi milli tvenns konar trúarbragða, það er að segja kristindóms
og íslams, eða gyðingdóms og íslams. Það eru nefnilega bókstafstrúarmenn í öllum trúarsamfélögum. Ég er ekki sammála því fólki sem telur að krossferðir miðalda verði senn endurteknar. Né held ég að þetta séu átök Austurs og Vesturs. Fyrir mér eru þessi átök milli nútímalegrar, skynsamlegrar rökhugsunar og óskynsamlegrar og blindrar
trúar. Fyrir mér eru þetta átök milli þeirra sem aðhyllast nútímann og þeirra sem eru andvígir nútímanum. Sumir vilja ganga áfram en aðrir afturábak. Þetta eru átök milli framtíðarinnar og fortíðarinnar, milli frumleika og hefðar, milli þeirra sem frelsinu unna og hinna sem það gera ekki."

Ég held að Simone sé alveg róleg í gröfinni …


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Samkeppnin er allra hagur

Samkeppniseftirlitið kynnti í gær mikla úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. ...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Ekki eins og að stela bíl

Ímyndum okkur skóframleiðanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiðandinn...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Átök skynsemi og trúar