Páll Óskar stoltur af Serbíuförum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 25. maí 2008 18:28 Páll Óskar í nettri sveiflu. „
Hjartað í mér er að springa úr stolti yfir íslensku keppendunum og ég held að öll þjóðin sé sammála mér um það að þau hafi gert þetta með þvílíkum glæsibrag," sagði Páll Óskar Hjálmtýsson í samtali við Vísi þegar hann var spurður út í söngvakeppnina í gær. „Ég er afskaplega sáttur við frammistöðu Friðriks og Regínu, bakraddirnar voru æðislegar og eins myndvinnslan á atriðinu. Þetta var allt á sínum stað," sagði Páll enn fremur. „Á hinn bóginn er þetta í fyrsta sinn í mörg ár sem ég er ekki ánægður með vinningslagið. Þetta er ákaflega hallærislegt lag og framsetningin á því líka. En þessi Rússi, Bilan, er alveg ofsalega stór poppstjarna í Rússlandi og hefur selt milljónir platna. Hann er svona Michael Jackson Austur-Evrópu og það vóg mjög þungt. Það er engu líkara en þessi fyrrum Sovétríki væru að kjósa svolítið sinn mann burtséð frá gæðum lagsins. Ég hefði heldur viljað sjá Úkraínu eða Armeníustelpurnar vinna þennan gaur. Miklu betri lög og miklu betur flutt," sagði Páll og bætti því við að 14. sætið fyrir okkur Íslendinga væri eitthvað sem við gætum verið stolt af, 14. sæti af 43 væri bara alls ekki svo slæmt. Hann kvaðst þó mest hissa á því að Portúgalar hefðu ekki komist ofar en í 13. sæti. Þeir hefðu hafnað í 2. sæti í síðari undankeppninni en svo farið sem raun bar vitni. „Þetta var eina lagið sem ég fékk raunverulega gæsahúð yfir," sagði Páll. „Það lítur út fyrir að úrslitin hafi ekki haft nein áhrif á þjóðina. Það var Eurovision-partý á NASA í gær og það var troðið út úr dyrum. Þannig að það er auðséð að við Íslendingar erum ekki meira þjakaðir af minnimáttarkennd en þetta," voru lokaorð Páls um gærkvöldið.
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Sjá meira