Fangaflugvél lenti í Keflavík í hádeginu Andri Ólafsson skrifar 14. mars 2008 15:09 Þetta er vélin sem lenti á Keflavíkurflugvelli í dag.
Tveggja hreyfla vél í eigu fyrirtækisins Aviation Specialities lenti á Keflavíkurflugvelli í hádeginu í dag. Aviation Specialities er skúffufyrirtæki í eigu CIA sem grunað hefur verið um að notað í fangaflug. Vélin, sem er af gerðinni Beechcraft C350, lenti klukkan 12:42 í dag. Hún tók eldsneyti og lagði af stað áleiðis til Syðri-Straumsfjarðar á Grænlandi klukkan 13:30. Áður en hún gerði það fór starfsmaður tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli um borð í vélina. Hann fékk þær upplýsingar að vélin væri á leiðinni til Manchester í New Hampshire ríki í Bandaríkjunum. Í vélinni voru tveir flugmenn en engir farþegar. Vélin kom hingað frá Solna-flugvellinum í Stavanger en þaðan kom hún frá Brno Turany í Tékklandi þaðan sem hún kom frá Búkarest í Rúmeníu. Eins og fyrr segir hefur fyrirtækið Aviation Specialities, eigandi vélarinnar, verið bendlað við svokallað fangaflug bandarískra stjórnvalda. Með fangaflugi er átt við að menn sem grunaðir eru um að eiga aðild að hryðjuverkasamtökum eru handteknir og fluttir til yfirheyrslna í löndum sem leyfa harkalegar yfirheyrsluaðferðir, jafnvel pyntingar. Í skýrslu sem Evrópuþingið lét gera árið 2006 um fangaflug kemur fram að Aviation Specialities sé staðsett í Baltimore í Bandaríkjunum og sé skúffufyritæki í eigu bandarísku leyniþjónustunar CIA.
Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Innlent Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Fleiri fréttir Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Sjá meira
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent