STEF vill hluta af styrktarfé krabbameinssjúks manns 28. febrúar 2008 20:27 Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Andrew D'Angelo saxófónleikara.
Maður sem stendur fyrir styrktartónleikum fyrir krabbameinssjúkan vin sinn á Organ annað kvöld hefur borist krafa frá STEF þar sem honum er gert að greiða höfundaréttargjöld fyrir þessa tónleika og leggja fram 20 þúsund króna tryggingu fyrir þeim áður en tónleikarnir fara fram. Hilmar Jensson tónlistarmaður heldur tónleikana til styrktar vini sínum, Andrew D'Angelo saxófónleikara, sem nýverið greindist með illkynja heilaæxli og hefur þegar gengist undir skurðaðgerð. Að sögn Hilmars þarf D´Angelo á frekari meðferð að halda. Öll þessi meðferð sé bæði erfið og dýr og þar sem hann sé án sjúkratryggingar, eins og svo margir Bandaríkjamenn, sé þetta gífurleg byrði fjárhagslega fyrir hann og hans nánustu. Á tónleikunum annað kvöld koma fram Ólöf Arnalds, Skúli Sverrisson, Benni Hemm Hemm, Stórsveit Nix Noltes og Kira Kira. Öll gefa þau vinnu sína og öll flytja þau eigin tónlist. Hilmar segir því um að ræða mjög undarlega hagsmunagæslu fyrir félagsmenn STEFs. Hilmar segir að endanleg upphæð sem renni til STEF velti á því hversu margir sæki tónleikana, en yfirleitt sé miðað við að 4% af miðaverði renni til STEF. Hilmar segist hafa rætt málin við forsvarsmenn STEFs til að kanna hvort ekki séu einhverjar undantekningar á reglum um STEF gjöld. Hins vegar sé fátt um svör. Í dag hafi hann hins vegar fengið ítrekun um kröfu STEF-gjaldsins.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Glæný könnun og þungavigtarfólk í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira