Innlent

Hundar leita á heimavistum

Nemendur á heimavistum framhaldsskóla á Íslandi geta margir átt von á fíkniefnaleitarhundum í heimsókn á vistirnar fyrirvaralaust. „Fíkniefnin eru vá sem við stöndum frammi fyrir á öllu landinu og við erum auðvitað með augun mjög vel opin,“ segir Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari Framhaldsskólans á Laugum, en nemandi við skólann var handtekinn á heimavist á þriðjudag með mikið magn fíkniefna sem talin eru hafa verið ætluð til sölu.

Valgerður segir að mjög vel sé fylgst með áfengis- og vímuefnanotkun íbúa heimavistarinnar. Svokallaðir húsbændur séu á vakt á heimavistunum öll kvöld og helgarnætur, starfsmenn sem nemendur fylgist vel með og láti vita ef eitthvað kemur upp, auk þess sem öflugur forvarnarfulltrúi starfi við skólann.

Valgerður hefur gripið til þess ráðs að kalla til lögreglu með fíkniefnaleitarhund einu sinni á vetri, en vill ekki gefa upp hvort eitthvað hafi fundist í slíkum leitum. Valgerður segir hundana þó ekki leita inni á herbergjum nemenda, enda sé óheimilt að fara inn á herbergin nema með húsleitarheimild frá lögreglu.

Halldór Páll Halldórsson, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni hefur einnig brugðið á það ráð að kalla til fíkniefnaleitarhunda. „Það er bara hluti af því að reka heimavist að fíkniefnahundar komi á vistir,“ segir hann. „Það eru fjögur ár síðan eitthvað mál tengt fíkniefnum kom hér upp síðast og síðan ég byrjaði hér hafa málin verið afskaplega fá og ekki stór.“

Í leigusamningum sem vistmenn á Laugarvatni gera er kveðið á um að stjórnendur hafi heimild til að leita í herbergjum að leigjanda viðstöddum vakni grunur um eitthvað misjafnt. Halldór segir þó mjög óalgengt að þetta þurfi að gera.

Að sögn Helga Braga Ómarssonar, skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum, hefur enn ekki komið til þess að fíkniefnahundar leiti á heimavistinni þar, þótt það hafi komið til tals. Helgi segir að aldrei hafi komið upp mál tengt fíkniefnum á heimavist skólans. „Það er bara svo erfitt að átta sig á þeim. Þau eru örugglega hér á ferðinni eins og annars staðar.“ Þá segir hann íbúa heimavistarinnar meðvitaða um það að leitað verði í herbergjum þeirra ef þurfa þykir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×