Enski boltinn

Arteta ekki á förum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mikel Arteta og Nacho Monreal á æfingu með Arsenal.
Mikel Arteta og Nacho Monreal á æfingu með Arsenal. Vísir/Getty
Umboðsmaður Mikel Arteta gerði lítið úr sögusögnum að hann væri á förum frá Arsenal í samtali við spænsku útvarpsstöðina Radio Blu Toscana. Arteta hefur verið orðaður við Fiorentina undanfarnar vikur en hann virðist vera ánægður í herbúðum Arsenal.

Hinn 32 árs gamli Arteta sem gekk til liðs við Arsenal fyrir þremur árum hefur leikið 94 leiki fyrir félagið og á eitt ár eftir af samningi sínum.

„Ég kannast ekki við að hafa talað við Fiorentina. Arteta á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Arsenal og honum líður vel hjá félaginu. Með fullri virðingu fyrir Fiorentina er hann fyrirliði Arsenal og er ekki á förum,“ sagði Inaki Ibenez, umboðsmaður Arteta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×