Innlent

Árrisull grillari leiddi til allsherjarútkalls

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Krummahólum.
Frá Krummahólum. Vísir/Jóhann
Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á níunda tímanum í morgun eftir að tilkynning barst af svörtum reyk frá íbúð í stóru fjölbýlishúsi í Krummahólum.

Í ljós kom að þar hafði íbúi tekið sig til við að grilla í morgunsárið.

Samkvæmt Slökkviliðinu eru grill ekki það fyrsta sem mönnum dettur í hug þegar tilkynning berst af miklum reyk á þessum tíma sólarhringsins. Slökkviliðsmenn voru kallaðir til baka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×