Fótbolti

Aron sat á bekknum í sigri Bremen

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hakan Calhanoglu jafnar fyrir Leverkusen gegn Bremen í dag.
Hakan Calhanoglu jafnar fyrir Leverkusen gegn Bremen í dag. Vísir/Getty
Werder Bremen vann góðan sigur á Bayern Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Aron Jóhannsson sat á bekknum allan tímann hjá Bremen.

Fyrir leikinn hafði Bremen einungis unnið einn sigur í deildinni og hafði 4 stig en Leverkusen var um miðja deild með 10 stig.

Það voru heimamenn sem komust yfir með marki frá Zlatko Junuzovic á 13.mínútu. Hakan Calhanoglu, sem lék með Tyrkjum í tapinu gegn Íslandi um síðustu helgi, jafnaði metin fyrir Leverkusen á 27.mínútu og staðan 1-1 í hálfleik.

Á 59.mínútu skoraði Ousman Manneh sigurmark Werder Bremen sem fór upp í 13.sæti með sigrinum.

Aron Jóhannsson sat eins og áður segir á varamannabekk Bremen allan tímann en hann hefur komið við sögu í þremur leikjum liðsins í deildinni til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×