Enski boltinn

Arnar: Liverpool yrði fullkomið starf fyrir Klopp

Kristinn Páll Teitsson skrifar
„Liverpool var til fyrirmyndar þetta ár sem hann stýrði þeim næstum því til sigurs í ensku úrvalsdeildinni og hefði svo sannarlega átt að vinna titilinn en hann er fyrst og fremst rekinn vegna þess að hann kann ekki að fara með peninga,“ sagði Arnar Gunnlaugsson um ákvörðun Liverpool um að reka Brendan Rodgers, fyrrum knattspyrnustjóra liðsins.

Hjörvar Hafliðason, Arnar Gunnlaugsson og Ólafur Páll Snorrason gerðu upp 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Messunni í gær og ræddu meðal annars hvað væri raunhæf stefna fyrir Liverpool.

„Hann gaf Daniel Sturridge og Philippe Coutinho tækifæri á sínum tíma og það voru frábær kaup en þegar hann fær úr miklu að moða eins og eftir söluna á Luis Suárez og Raheem Sterling þá fór hann að apa eftir það sem Tottenham gerði eftir söluna á Gareth Bale. Kaupa leikmenn sem voru ekki tilbúnir og það varð á endanum hans banabiti,“ sagði Arnar.

Mikið hefur verið rætt um að Jürgen Klopp, fyrrum þjálfari Dortmund, muni taka við keflinu sem knattspyrnustjóri Liverpool.

„Maður sá myndband um daginn af honum á Anfield og hann virðist hafa einhverja tilfinningu fyrir félaginu. Hann er með karakter sem stuðningsmenn og aðrir bera mikla virðingu fyrir. Hann gæti auðveldlega beðið og séð hvort að til dæmis Chelsea reki Mourinho,“ sagði Ólafur en Arnar telur Liverpool og Klopp fari vel saman.

„Ég held að Liverpool sé fullkomið fyrir hann. Hann vill vera í persónulegu sambandi við stuðningsmennina og hvað sem allir segja þá er Liverpool mjög aðlaðandi starf. Þetta er eitt af stóru félögunum í fótboltaheiminum og þetta er þrátt fyrir árangurinn eitt af topp störfunum í fótboltanum,“ sagði Arnar en Ólafur sagðist ekki vera viss hvort Liverpool gæti stefnt á Meistaradeildarsæti.

„Ég held að liðið eigi bara að stefna á 6-8. sæti, leikmennirnir sem eru til taks eru einfaldlega ekki nægilega góðir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×