Fótbolti

Ari Freyr spilaði allan leikinn í fyrsta sigri Lokeren

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ari Freyr Skúlason spilar fyrir belgíska liðið Lokeren.
Ari Freyr Skúlason spilar fyrir belgíska liðið Lokeren. Mynd/Getty
Íslenski landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn fyrir Lokeren þegar liðið fór í heimsókn til Waasland-Beveren í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Lokeren vann leikinn með þremur mörkum gegn tveimur. Stefano Marzo, Marko Miric og Mehdi Terki skoruðu allir fyrir Lokeren í fyrri hálfleik og leiddu gestirnir 3-0 í leikhléi.

Heimamenn í Waasland-Beveren komu til baka í seinni hálfleik og gerðu Opoku Ampomah og Rudy Camacho mörkin fyrir heimamenn.

Þetta var fyrsti sigur Lokeren í deildinni, en liðið tapaði í fyrstu þremur umferðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×