Enski boltinn

Ameobi verður samherji Arons Einars

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cardiff hefur tryggt sér þjónustu Sammy Ameobi á næsta tímabili en hann kemur til félagsins á lánssamningi frá Newcastle.

Ameobi skrifaði nýverið undir nýjan samning við Newcastle en fær nú tækifæri til að spila meira og vera í lykilhlutverki hjá Cardiff sem leikur í B-deildinni í Englandi.

Hann á að baki 54 leiki í efstu deild en þessi 23 ára kantmaður er uppalinn hjá Newcastle. Hann var lánaður árið 2013 til Middlesbrough en hefur annars ekki spilað með öðru liði.

Ameobi skoraði sín fyrstu deildarmörk á síðustu leiktíð en alls á hann að baki 66 leiki með Newcastle og hefur skorað í þeim fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×