Heilsa

Allt um meðgöngu og fæðingu

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Algengt er að verðandi mæður fari í bumbuhóp með öðrum verðandi mæðrum sem eru settar í sama mánuði eða sömu árstíð.

Þó auðvitað henti slíkir hópar ekki öllum.

Margar spurningar brenna oft á mæðrum í tengslum við meðgönguna og fæðinguna og umhirðu nýburans.

Nýlega fékk vefurinn Ljósmóðir.is algera yfirhalningu og þar má bæði senda inn spurningar og fá svör og svo lesa áhuga verða pistla og spurningar annarra. Ef þú hefur spurningar um brjóstagjöf getur þú leitað sérstaklega hingað.

Þá er til ógrynni af bókum sem einnig er gott að glugga í og má þar helst nefna: 

Draumalandið eftir Örnu Skúladóttir - fjallar um svefn ungabarna

Upphafið, bréf til þín frá ljósunni þinni eftir Huldu Jónsdóttur - fjallar um meðgöngu og fæðingu útfrá sjónarhóli ljósmóður

Hollráð Hugos eftir Hugo Þórisson - fjallar um hvernig samskipti foreldra og barna

Kjaftað um kynlíf eftir Siggu Dögg - fjallar um hvað er eðlilegt í kynvitund og þroska barnsins frá fæðingu til framhaldsskóla

Maður gengur með eftir Darra Johansen - fjallar um upplifun föðurs af meðgöngu og því að verða faðir

Fyrstu 1000 dagarnir, barn verður til eftir Sæunni Kjartansdóttur - uppflettibók um fyrstu þrjú ár í lífi barns

Árin sem enginn man eftir Sæunni Kjartansdóttur - fjallar um mikilvægi tengslamyndunar í frumbernsku

Pabbi, bók fyrir verðandi feður eftir Ingólf V. Gíslason - fjallar um meðgöngu. fæðingu og uppeldi útfrá sjónarhorni karlsins

Uppeldi fyrir umhverfið eftir Susannah Marriott - fjallar um hvernig megi ala barnið upp á sem umhverfisvænastan hátt

Óskabörn eftir Sigrúnu Maríu Kristinsdóttir - fjallar um ættleiðingar á Íslandi og ferlið

Hulstur utan um sál eftir Hugrúnu Hrönn Kristjánsdóttir - fjallar um ólíkar fjölskyldugerðir og er góð fyrir börn sem eru að fara eignast systkini

Konur með einn í útvíkkun fá enga samúð - fjallar um fæðingarsögur ólíkra kvenna

Þetta er langt í frá tæmandi listi en allar bækurnar eru skrifaðar af íslenskum höfundum á íslensku.


Tengdar fréttir

Fæðingarpartí?

Hver á að vera viðstaddur fæðingu barns? Er þetta partí sem fólk má eiga von á að vera boðið í eða gera jafnvel sumir kröfu um að vera með?

Hreyfing á meðgöngu

Sú mýta hefur verið öðrum yfirsterkari að óléttar konur eigi alls ekki að hreyfa sig en nú er öldin önnur.

Fjörið eftir fæðinguna

Nú er meðgöngunni lokið og barnið komið í heiminn svo við tekur gleði og hamingja...eða hvað?

Fæðingarsögur

Fæðingar geta verið allskonar og því getur verið gaman að renna í gegnum fæðingarreynslu nokkurra kvenna og eins föðurs

Tími á milli barneigna

Þegar barn er fætt fer af stað klukka og nú velta margir foreldrar því fyrir sér hvort eiga skuli fleiri börn og þá hvenær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×