Lífið

Allt annar heimur blasir við

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Íslenski hópurinn í Eurovision, áður en hann hélt til Vínarborgar.
Íslenski hópurinn í Eurovision, áður en hann hélt til Vínarborgar. vísir/gva
Pálmi Ragnar Ásgeirsson, einn lagahöfunda Unbroken, segir tilhlökkunina fyrir keppninni mikla. Stress hafi lítið gert vart við sig enda María öruggur flytjandi.

„Við erum flest í hópnum að gera þetta í fyrsta skipti, þannig að við erum eiginlega bara spennt að fá að upplifa alla stemninguna í kringum þessa keppni. En ég á von á að maður detti inn í einhverja allt aðra veröld,“ segir Pálmi. 

Engar væntingar

Hann segist ekki vilja spá fyrir um gengi lagsins, en vonast til að það komist upp úr undankeppninni. „Við förum út með núll væntingar. Við ætlum fyrst og fremst að hafa gaman og gera þetta vel, allt annað er bara bónus.“

Lagið Unbroken er sem fyrr segir samið af Pálma og félögum hans í StopWaitGo. Þeir hafa látið mikið að sér kveða í íslensku tónlistarlífi og stefna hátt. Lagið sníða þeir sérstaklega að tónlistarmönnunum sjálfum, líkt og í tilfelli Maríu.

„Við höfum þekkt Maríu lengi. Við vildum sýna hvað hún gæri góð söngkona en það þarf að sníða lögin þannig að söngvararnir skíni og það var það sem við lögðum upp með í þessu lagi. Við vildum sýna hvað í henni býr og löngu flottu power-nóturnar hennar og það var það sem við höfðum í huga þegar við sömdum lagið,“ segir Pálmi.

Textinn er hádramatískur. Hann fjallar um sambandsslit og ástarsorg sem þeim fylgir en aðspurður segir Pálmi þá ekki hafa sótt í þeirra eigin reynslubanka. Textinn sé þó eitthvað sem flestir tengi við.

Sækja ekki í eigin reynslubanka

„Þetta er í raun bara einhver inspírasjón sem stundum kemur til manns. Stundum kemur það ekki en þarna gerðist það. Við búum í Bandaríkjunum og lagið var þar af leiðandi samið þar en það eina sem við lögðum upp með í þessu lagi var trommutakturinn; hljómarnir og takturinn og í kjölfarið fórum við í það að finna hvaða orð pössuðu þar inn í.“

Þá segist Pálmi hafa mikla trú á Maríu. „Hún verður stórkostleg eins og alltaf. Hún mun hljóma vel og standa sig frábærlega á sviðinu,“ segir hann.


Tengdar fréttir

María hitti Ég á líf kallinn

Þjóðverjinn Bernd Korpasch hefur húðflúrað titil lagsins Ég á líf á handlegg sinn og er þess vegna oft kallaður Ég á líf kallinn.

„Líf mitt er á krossgötum í augnablikinu“

„Ég fór úr því að lifa mjög miklu einkalífi yfir í að allt í einu vita allir allt um mann. Svo ég þarf að hafa fyrir því að halda persónulegum hlutum fyrir mig,“ segir María Ólafsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×