Innlent

Allt að tuttugu stiga hiti á Norðausturlandi í vikunni

Bjarki Ármannsson skrifar
Húsavík á góðum degi.
Húsavík á góðum degi. Vísir/Pjetur
Hiti gæti náð allt að tuttugu stigum norðaustanlands þegar líður á vikuna, að því er fram kemur í spá á vef Veðurstofunnar.

Þar er spáð áframhaldandi bjartviðri fyrir norðan og austan. Hiti gæti náð allt að sautján stigum á morgun en allt að tuttugu stigum á fimmtudag og föstudag.

Suðvestantil á landinu er hinsvegar von á vætu næstu daga, skúrum eða rigningu með köflum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×