Innlent

Allt á floti hjá Sveinbjörgu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sveinbjörg Birna hefur þurft að glíma við vatnsleka í tvígang síðustu vikur.
Sveinbjörg Birna hefur þurft að glíma við vatnsleka í tvígang síðustu vikur.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina, hefur í tvígang þurft aðstoðar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum vikum en hún greinir frá þessu á Facebooksíðu sinni.

Þar segir hún að þótt gaman sé að fá slökkviliðsmenn í heimsókn sé það ekki á dagskrá að fá þá til sín einu sinni í mánuði.

„En það er nú samt reyndin, vatnstjón nr. 2 staðreynd, hið fyrra var 20. des og frúin flutti inn 19 nóv. ARG — er örg/argur,“ segir hún í færslu á Facebook.

Af Facebook-síðu Sveinbjargar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×