Fótbolti

Alfreð tekur sig vel út í rauðu | Myndir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason á æfingunni í morgun.
Alfreð Finnbogason á æfingunni í morgun. mynd/augsburg fc
Alfreð Finnbogason, landsliðsframherji í fótbolta, æfði í fyrsta sinn með sínu nýja liði Augsburg í morgun, en hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við þýska félagið í gær.

„Alfreð tekur sig vel út í rauðu,“ segir á Twitter-síðu Augsburg þar sem nokkrar myndir af nýja framherjanum eru settar inn frá æfingunni í morgun.

Sjá einnig:Maður lærir rosalega mikið á þessum erfiðu tímum

Íslenski landsliðsframherjinn er svo aftur boðinn velkominn til félagsins, en hann gæti spilað sinn fyrsta leik um helgina þegar Augsburg sækir Ingolstadt heim.

Um aðra helgi tekur Augsburg svo á móti Þýskalandsmeisturum Bayern München. Liðið er ósigrað í síðustu sex leikjum í þýsku 1. deildinni og er sem stendur í 12. sæti deildarinnar.

365 fékk á nýju ári sýningarréttinn frá þýska fótboltanum til næstu 18 mánaða og má búast við að sjá Alfreð reglulega á skjánum næstu misserin.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×