Fótbolti

Alfreð spilaði átta mínútur í markalausu jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfreð í búningi Real Sociedad.
Alfreð í búningi Real Sociedad. vísir/getty
Alfreð Finnbogason spilaði átta mínútur í markalausu jafntefli Real Socidedad gegn Villareal í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Sociedad var meira með boltann í leiknum, en lærisveinar David Moyes í Sociedad komu sér þó í sín færi.

Alfreð byrjaði á bekknum, en kom inn af bekknum þegar átta mínútur voru eftir af leiknum.

Sociedad er eftir leikinn í tólfta sæti deildarinnar, en Villareal er í því sjötta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×