Fótbolti

Alfreð skoraði og Augsburg vann | Sjáðu markið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alfreð skoraði.
Alfreð skoraði. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var á skotskónum í þýsku úrvalsdeildinni í dag en hann skoraði eitt mark fyrir Augsburg í frábærum sigri á Werder Bremen, 2-1.

Florian Grillitsch kom Bremen yfir á 43. mínútu leiksins en Alfreð jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks. Það var síðan Jeong-Ho Hong sem tryggði Augsburg öll stigin þrjú þremur mínútum fyrir leikslok.

Bayern Munchen vann auðveldan sigur á Stuttgart, 3-1, og rígheldur liðið í toppsæti deildarinnar.

FC Bayern er í efsta sæti deildarinnar með 75 stig, átta stigum á undan Borussia Dortmund sem á einn leik til góða. Augsburg er í 15. sætinu með 30 stig og var sigurinn í dag gríðarlega mikilvægur í fallbaráttunni.

Hér að neðan má sjá úrslit dagsins í þýsku deildinni og einnig mark Alfreðs.

Eintracht Frankfurt 0 - 2 Hoffenheim

Hamburger SV 1 - 2 Darmstadt

Ingolstadt 1 - 0 Borussia Moenchengladbach

VfB Stuttgart 1 - 3 Bayern Munchen

Werder Bremen 1 - 2 Augsburg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×