Innlent

Akurnesingur dæmdur í hálfs árs nálgunarbann gegn eiginkonu sinni

Bjarki Ármannsson skrifar
Hæstiréttur staðfesti í gær nálgunarbann karlmanns á Akranesi gegn eiginkonu hans.
Hæstiréttur staðfesti í gær nálgunarbann karlmanns á Akranesi gegn eiginkonu hans. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í gær nálgunarbann karlmanns á Akranesi gegn eiginkonu sinni. Manninum er meinað að koma innan fimmtíu metra frá heimili konu sinnar en hún segir hann hafa beitt sig heimilisofbeldi í um tíu ár.

Sparkaði í konu sína og tók af henni vegabréfið

Í beiðni lögreglustjórans á Akranesi um nálgunarbann gegn manninum kemur fram að lögreglu barst tilkynningu um heimilisofbeldi þann 21. maí  síðastliðinn. Þegar lögregluþjónar mættu á vettvang stóð maðurinn úti á bílastæði fyrir framan heimili sitt, talsvert ölvaður, ásamt syni sínum. Sonurinn hafi útskýrt fyrir lögregluþjónum að foreldrar hans hafi verið að rífast og að móðir hans og systir væru inni í íbúðinni.

Þegar lögregla ræddi við konuna sagði hún eiginmann sinn hafa sparkað í sig fyrr um kvöldið og hent henni inn í barnaherbergi. Hann hafi jafnframt reynt að ná af henni farsíma hennar og tekið af henni vegabréf hennar. Þá sagði hún mann sinn hafa skallað sig og snúið upp á handlegg sinn stuttu áður með þeim afleiðingum að hún þurfti að leita sér læknisaðstoðar.

Braut þrisvar gegn nálgunarbanni

Þann 22. maí var manninum gert að sæta nálgunarbanni og brottvísun af heimili sínu með úrskurði Héraðsdóms Vesturlands. Nálgunarbannið var í gildi til 13. nóvember en maðurinn er sagður hafa brotið þrisvar gegn því á þeim tíma. Meðal annars var óskað eftir lögreglu í almenningssundlaug þann 7. október þar sem maðurinn hafði í hótunum við konu sína og hótaði að „stúta“ þeim báðum, að sögn vitna.

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi manninn í síðasta mánuði í áframhaldandi nálgunarbann til 13. maí á næsta ári. Hæstiréttur hefur nú staðfest þann úrskurð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×