Innlent

Akureyrarborg fengi skýrara hlutverk gagnvart ríkinu

Úr bæ í borg? Bæjarstjóra Akureyrar finnst ekki skipta nokkru máli hvort Akureyri er bær eða borg.Mynd/Ragnar Hólm Ragnarsson
Úr bæ í borg? Bæjarstjóra Akureyrar finnst ekki skipta nokkru máli hvort Akureyri er bær eða borg.Mynd/Ragnar Hólm Ragnarsson
Með því að skilgreina Akureyri sem borg yrði hlutverk hennar og ábyrgð skýrari gagnvart ríkinu og öðrum sveitarfélögum. Þetta segir Þóroddur Bjarnason, stjórnarformaður Byggðastofnunar. Engin ákvæði eru í lögum sem tilgreina hvaða skilyrði bæjarfélag þarf að uppfylla til að fá borgartitil.

Þóroddur sendi bæjarfulltrúum Akureyrarbæjar nýverið fyrirspurn um álit þeirra á þessari mögulegu breytingu.

„Þetta gæti einfaldað ákveðin mál, til dæmis innan heilbrigðiskerfisins," segir Þóroddur. „Þetta mundi skýra betur þjónustuhlutverk sjúkrahússins í samhengi við hvernig heilbrigðiskerfi á að byggja upp sem er nógu stórt fyrir landshlutann."

Gagnvart ríkinu segir Þóroddur að borgartitill gæti skýrt hví Akureyri fær hluti sem önnur bæjarfélög fá ekki sem og ábyrgðarhlutverk hennar vegna þess. Engin fordæmi eru fyrir þessu hér á landi og telur Þóroddur að nóg sé að bæjaryfirvöld ákveði að breyta skilgreiningunni. „Ef þau lýsa því yfir að bærinn verði borg frá áramótum, þá verður það bara þannig."

Reykjavík var skilgreind sem borg árið 1962, en þá voru íbúarnir um 75 þúsund. Akureyri er fjórði stærsti bær landsins, með átján þúsund íbúa, og sá stærsti utan höfuðborgarsvæðisins. Íbúafjöldi Kópavogs er næstmestur á eftir Reykjavík, en þar búa rúmlega 31 þúsund íbúar. Nýverið kom sú hugmynd upp að Kópavogur yrði skilgreindur sem borg í ljósi íbúafjöldans. Þóroddur segir það ekki duga til.

„Kópavogur getur verið öflugt og gott samfélag, en hefur ekki mikið þjónustuhlutverk út fyrir bæjarmörkin," segir hann. „Reykjavík er lítil í alþjóðlegu samhengi, en sinnir því sem hún á að sinna sem höfuðborg. Því verður Kópavogur aldrei borg, sama hvað hann er stór."

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, kallar málið orðaleik. „Mér finnst þetta ekki skipta neinu máli," segir hann. „Vissulega er eðlilegt að hugmyndin komi upp og hún rædd, en okkur hefur liðið ágætlega sem bær í 150 ár og líður sennilega ágætlega í önnur eins."

Akureyri vikublað greindi frá því í gær að Jón Gnarr borgarstjóri, sem staddur var á Akureyri í tilefni afmælishátíðar bæjarins, hefði tekið afar vel í hugmyndina. „Mér finnst það löngu tímabært að Akureyri breytist úr bæ í borg og styð það heils hugar," sagði borgarstjórinn.

sunna@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×