Fótbolti

Ajax lagði Celtic

MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Ajax á enn möguleika á því að komast í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir fínan 1-0 sigur á skoska liðinu Celtic.

Það var Daninn Lasse Schöne sem skoraði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks. Kolbeinn Sigþórsson var í byrjunarliði Ajax en var tekinn af velli á 90. mínútu.

Ajax er í þriðja sæti riðilsins. Einu stigi á eftir AC Milan þegar tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×