Skoðun

Áhyggjufullir læknanemar

Kæri Illugi Gunnarsson.

Í Slóvakíu situr áhyggjufullur hópur læknanema. Okkur langar að koma á framfæri vangaveltum okkar í kjölfar nýrra úthlutunarreglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

Fyrir þremur árum hófu fyrstu nemendurnir nám við Comenius háskóla – stærsta háskóla í Slóvakíu. Bæst hefur í hópinn síðustu ár og stunda nú um 70 íslenskir stúdentar nám við skólann.

Nýjustu úthlutunarreglur LÍN hafa sett ófyrirséð strik í reikninginn fyrir læknanema í Slóvakíu. Brugðið hefur verið fæti fyrir nemendur með nánast 19 % skerðingu á framfærsluláni síðustu tvö árin. Nemendur hófu hér nám á ákveðnum forsendum sem nú hafa algjörlega brostið. Í kjölfar þessarar skerðingar sjáum við ekki fram á að ná endum saman. Húsnæði og matvara fer hækkandi í Evrópu, en lán okkar lækkandi. Ferðalán var afnumið á síðasta ári sem gerir nemendum erfitt fyrir að afla tekna yfir sumartímann á Íslandi. Þar að auki eru möguleikar á tekjuöflun í Slóvakíu á meðan á námi stendur nánast engir. Það liggur því í augum uppi að dæmið er ekki rétt reiknað.

Í Slóvakíu gefst möguleiki á að útskrifa um 20-­‐30 íslenska lækna á ári. Nemendur þurfa þó að sjálfsögðu að geta reitt sig á LÍN til framfærslu á meðan á námi stendur. Þau lán munu greiðast tilbaka þegar útskrifaðir læknar koma til starfa á Íslandi að námi loknu. Á Íslandi skortir enn lækna og því ætti þessi kostur að fá meiri meðbyr og stuðning frá íslenska ríkinu.

Sá góði kostur sem gefist hefur að mennta lækna erlendis mun lognast útaf með þessu áframhaldi. Fjölbreytni í menntun, þekkingu og reynslu er af hinu góða.

Við erum um 70 læknanemar í Slóvakíu sem hafa orðið fyrir barðinu á skerðingunni. Úthlutunarkjör, viðmót og rök af höndum LÍN í okkar garð hafa því miður verið til skammar. Við köllum eftir því að þú Illugi Gunnarsson ásamt ráðamanni frá LÍN komi til fundar við okkur og ræðir við okkur læknanema í Slóvakíu.

Þar viljum við að eftirfarandi komi fram:

1. Hvernig réttlætið þið áframhaldandi skerðingu framfærslulána til námsmanna erlendis?

2. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að við megum við meiri skerðingu á framfærslu hér og á hverju byggjast ykkar rök fyrir því?

Með kveðju, Auður Jóna Einarsdóttir Ásgeir Þór Magnússon Erna Markúsdóttir Þórdís Magnadóttir Þórunn Elísabet Michaelsdóttir.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×