Fótbolti

Agüero: Gef allt sem ég á í úrslitaleikinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Sergio Agüero telur að argentínska landsliðið þurfi að hafa gætur á í leik liðsins gegn Þýskalandi í úrslitum Heimsmeistaramótsins.

Agüero og félagar í argentínska landsliðinu unnu leik sinn í undanúrslitum í vítaspyrnukeppni gegn Hollandi en deginum áður slátraði þýska liðið Brasilíu á heimavelli 7-1. Þá eru aðeins fjögur ar síðan Þýskaland vann Argentínu 4-0 í átta liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku.

„Þýskaland er með frábært lið og það getur hvaða þjóð sem er lent í því að tapa stórt eins og Brasilía. Þeir þurfa hinsvegar einnig að hafa varan á, við erum með skeinuhætt lið sem á skilið að vera komið í úrslitin,“ sagði Agüero sem hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur.

„Þegar þú ert að ná þér af meiðslum óttastu alltaf að þau komi upp aftur en ef þjálfarinn treystir mér í úrslitaleiknum mun ég gef allt sem ég á í þann leik. Það vantar örlítið uppá snerpuna hjá mér eftir að hafa misst af þremur leikjum en ég mun reyna að gera mitt besta,“ sagði Agüero.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×