Enski boltinn

Aguero mun líklega spila gegn Arsenal

Aguero haltrar af velli eftir að hafa meiðst á dögunum.
Aguero haltrar af velli eftir að hafa meiðst á dögunum. vísir/getty
Argentínumaðurinn Sergio Aguero, leikmaður Man. City, er meiddur en á ágætum batavegi.

Stjóri City, Manuel Pellegrini, er bjartsýnn á að leikmaðurinn nái stórleiknum gegn Arsenal þann 18. janúar.

„Ég er bjartsýnn á að hann nái þeim leik og byrji jafnvel að spila fyrr," sagði Pellegrini.

Það væri gríðarlegur styrkur fyrir City að fá Aguero til baka en hann hefur verið sjóðheitur í vetur og er þegar búinn að skora 19 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×