Enski boltinn

Agbonlahor fer ekki í bann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Villa mótmæltu dómi Lee Mason kröftuglega.
Leikmenn Villa mótmæltu dómi Lee Mason kröftuglega. Vísir/Getty
Gabriel Agbonlahor, leikmaður Aston Villa, þarf ekki að taka út leikbann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leik liðsins gegn Manchester United á laugardag.

Leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli en Agbonlahor fékk rautt fyrir að tækla Ashley Young í síðari hálfleik. Félagið fékk þó kæru á sig fyrir að hafa ekki stjórn á leikmönnum sínum í leiknum.

Hann getur því spilað með sínu liði sem mætir Swansea á öðrum degi jóla.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×