Lífið

Áfengisneysla dró hana til dauða

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Elizabeth lést þann 14. október.
Elizabeth lést þann 14. október. vísir/getty
Leikkonan Elizabeth Peña lést úr skorpulifur vegna áfengisneyslu samkvæmt dánarvottorði hennar sem vefsíðan TMZ hefur undir höndum.

Samkvæmt síðunni var Elizabeth búin að vera með skorpulifur svo mánuðum skipti áður en hún lést þann 14. október síðastliðinn.

Elizabeth skilur eftir sig eiginmanninn, Hans Rolla, dótturina Fionu og barnabarnið Kaelan.

Elizabeth lék meðal annars í kvikmyndunum Jacob's Ladder og La Bamba og er í dag hvað þekktust fyrir að leika móður Sofiu Vergara í þáttunum Modern Family.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×