Skoðun

Af þessu hef ég áhyggjur

Árni Gunnarsson skrifar
„Það er eitthvað alvarlega bogið við þá hugsun, að menn geti valið að sinna eða sinna ekki stjórnmálum. Hver einasti hugsandi þegn landsins sinnir stjórnmálum hvern einasta dag, kemst ekki hjá því með neinu móti að hafa áhyggjur af þjóðarhag og hugsa um það, hvað honum og fjölskyldu hans sé fyrir bestu sem íbúum þessa ríkis.“ (Páll Skúlason)

Ég hef áhyggjur:

-Þegar ég sé langar biðraðir fólks, sem bíður eftir matargjöfum.

-Þegar ég sé gömlum heilabiluðum manni þvælt á milli heilbrigðisstofnana.

-Þegar ég sé fólk liggja í sjúkrarúmum á göngum sjúkrahúsa.

-Þegar í sjúkrahúsum eru langir biðlistar eftir aðgerðum.

-Þegar ég veit að margir aldraðir eiga ekki fyrir nauðþurftum áður en mánuður er liðinn frá útborgun ellilauna.

-Þegar mér er kunnugt um fjárhagslega örðugleika öryrkja.

-Þegar ég þekki ungt skuldumvafið fólk, sem ræður ekki við að greiða afborganir af íbúðalánum vegna hárra vaxta og verðtryggingar.

-Þegar ég les tölur um nokkur þúsund fátækra barna, sem fá ekki notið hins sama og börn frá efnameiri heimilum.

-Þegar ég veit að skólar og heilbrigðisstofnanir ná ekki að starfa og þróast eðlilega vegna peningaskorts.

-Þegar ég veit að lítill hluti þjóðarinnar á langstærstan hlut allra eigna og hefur margfaldar tekjur samanborið við mikinn meirihluta almennings.

-Þegar örfáir menn njóta arðsins af þjóðareignum.

-Þegar náttúran fær ekki notið vafans í ágreiningi um framkvæmdir og í afstöðu til mengunarmála.

-Þegar ég verð vitni að linnulítilli spillingu.

-Þegar fasismi og populismi ná að festa rætur.

-Þegar mér er ljóst, að jafnaðarstefnan hefur ekki átt hljómgrunn meðal þeirra, sem stjórna.

Stjórnmálasagan sýnir og sannar, að þeim þjóðum vegnar best, þar sem jafnaðarstefnan hefur ráðið ferð. Í kosningunum á laugardag er mikilvægt að stöðva þróun ójafnaðar. Þess vegna ætla ég að greiða Samfylkingunni, Jafnaðarmannaflokki Íslands, atkvæði mitt, -enda veit ég, að formaður flokksins er stálheiðarleg kona og traustur jafnaðarmaður.

Árni Gunnarsson er fyrrverandi alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×