Innlent

Aðstoð til að flytja aftur heim

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, kynnti samkomulagið á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær.
Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, kynnti samkomulagið á fundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. vísir/gva
Áætlað er að aðstoða 100 hælisleitendur við að flytja heim til sín á næstu átján mánuðum á grundvelli samnings sem Útlendingastofnun og Alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) hafa gert. Samningurinn snýst um aðstoð við sjálfviljuga heimför.

Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að verkefnið kosti tæpar 36 milljónir króna. Þar af eru 19,5 milljónir greiddar til Alþjóðlegu flutningastofnunarinnar fyrir þjónustuna. Sextán milljónir króna eru ætlaðar fyrir 100 flutninga.

Fram kom í máli Tobiasar van Treeck, verkefnastjóra á skrifstofu IOM í Helsinki, að stuðningurinn geti verið margvíslegur. Í sumum tilfellum er einungis um að ræða stuðning við fólk til að flytjast búferlum, en í öðrum tilfellum stuðning við fólk til að koma sér fyrir í heimalandinu.

Þótt samningurinn hafi verið kynntur í gær var skrifað undir hann 1. ágúst síðastliðinn. Kristín segir að hælisleitendur séu þegar farnir að spyrjast fyrir um hann. Þar sé bæði um að ræða fólk sem hafi verið neitað um dvalarleyfi hér og fólk sem er búið að vera hérna en vilji hreinlega fara. „Þannig að vonir okkar standa til þess að fólk muni nýta sér þessa leið,“ segir hún.

Eins og greint hefur verið frá hafa aldrei jafn margir sótt um hæli hér á landi og nú. Heildarfjöldi umsókna það sem af er ári er þegar meiri en allt síðasta ár. Heildarfjöldi umsækjenda á fyrstu átta mánuðum ársins var 384 en á sama tíma á síðasta ári höfðu 156 umsóknir borist. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×