Innlent

Aðgerðarleysi gegn Hrafni klagað

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Langt utan við mörk lóðar Hrafns Gunnlaugssonar hefur hann reist bátaskýli í fjöruborðinu.
Langt utan við mörk lóðar Hrafns Gunnlaugssonar hefur hann reist bátaskýli í fjöruborðinu. Fréttablaðið/Daníel
Hrafn Gunnlaugsson
Skipulagssvið borgarinnar íhugar nú til hvaða ráða eigi að grípa vegna óleyfisframkvæmda Hrafn Gunnlaugssonar kvikmyndaleikstjóra í Laugarnesi.

Allt frá árinu 1997 hefur borgin glímt við Hrafn og umsvif hans innan og utan lóðar við Laugarnestanga 65. Í kjðlfar þess að í ljós kom að Hrafn hafði í leyfisleysi komið upp eins konar bátaskýli í fjöruborðinu framan við lóð sína og húskofa inn á lóðinni samþykkti skipulagsráð vorið 2010 um að þau mannvirki yrðu að hverfa. Um þetta sama leyti var gæsatjörn og -hólar ofan við hús Hrafns jafnaðir út.

Hrafni var gefinn frestur til andmæla og til þess að fjarlægja byggingarnar sjálfur. Að öðru kosti myndi borgin láta ryðja þeim burt og senda Hrafni síðan reikninginn.

Laugarnestangi 65
Þrátt fyrir þessa ákvörðun og viðvaranir hefur ekkert gerst í málinu, þremur og hálfu ári síðar. Í fyrra barst borginni kvörtun undan aðgerðarleysinu frá einstaklingi sem ekki býr í Laugarnesi samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sá sami kvartaði síðan á þessu ári undan málsmeðferðinni til embættis umboðsmanns borgarbúa.

Í júlí í sumar tók byggingarfulltrúi saman greinargerð um „lausn fyrir umhverfi lóðarinnar og framkvæmdir sem þar eru án leyfis,“ eins og sagði í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs þar sem greinargerðin var kynnt í síðustu viku. Engin ákvörðun var tekin í ráðinu um framhald málsins.

Laugarnestangi 65
Afrit af greinargerðinni hefur ekki fengist afhent hjá borginni með þeirri skýringu að hún sé aðeins opinbert vinnuskjal. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er þar reyndar enga sérstaka lausn á málinu að finna. Aðeins er undirstrikað að komast þurfi að niðurstöðu um það hvort fylgja eigi ákvörðununni frá 2010 eða ekki. Sérstaklega mun vera litið til þess innan borgarkerfisins að margir telja lítinn skaða af framkvæmdum Hrafns sem þess utan dragi til sín fjölda áhugasamra gesta.

Hvorki náðist tal af Hrafni Gunnlaugssyni né Birni Stefáni Hallssyni byggingarfulltrúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×