Innlent

Aðeins boðið upp á fimmtán rétti á tæp 30 þúsund

Heimir Már Pétursson skrifar
Í Kaupmannahöfn er óvenjulegur matsölustaður sem aðeins tekur þrjátíu gesti og býður eingöngu upp á eitt val á matseðli, sem reyndar eru fimmtán réttir. Ungur Íslendingur er yfirþjónn á staðnum og sem hann segir njóta mikilla vinsælda. Heimir Már leit við hjá honum á dögunum.

Veitingastaðurinn Kadeau (Kadó) í Kaupmannahöfn er sérstakur fyrir margra hluta sakir. Hann á rætur sínar að rekja til þess að eigendurnir opnuðu sumarveitingastað á eyjunni Borgundarhólmi fyrir tíu árum og notuðu eingöngu hráefni þaðan í matargerð sína. Fyrir rúmu ári opnuðu þeir síðan Kadeau veitingastaðinn í Kaupmannahöfn sem einnig nýtir eingöngu hráefni frá eynni og úr sjónum í kring um hana.

Og á Kadeau er hálf íslenskur yfirþjónn, Kristinn Eyfjörð Pedersen, en hann hefur reyndar búið alla sína ungu ævi í Danmörku og því ekki mjög sleipur í íslenskunni.

En það kostar litlar 29 þúsund íslenskar krónur að borða á Kadeau og vilji menn einnig drekka áfengi með matnum er aðeins hægt að velja um fyrirfram ákveðinn vínseðil og hann kostar 1.700 danskar eða um 27 þúsund íslenskrar krónur. Matur og vín kosta því samanlagt um 56 þúsund krónur.

Þrátt fyrir verðið og að staðurinn tekur aðeins að hámarki á móti 30 gestum í einu, gengur reksturinn vel að sögn Kristins Eyfjörð en horfa má á heimsókn Heimis Más Péturssonar á þennan einstaka matsölustað í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×