Innlent

Aðalhundaþjálfarinn kominn á útkallslista

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ingibjörg Ylfa með fíkniefnaleitarhundinn Kötu.
Ingibjörg Ylfa með fíkniefnaleitarhundinn Kötu.
Hundaþjálfarinn Ingibjörg Ylfa Ólafsdóttir, aðalhundaþjálfari Tollstjóra, er nú kominn á útkallslista Landamærastofnunar Evrópu, Frontex. Hefur hún öðlast réttindi til þess að kenna leitarhundaþjálfun á vegum Frontex í öðrum löndum.

Hefur hún fengið fullgild réttindi sem „European Border Guard (EUBG) Canine Team Instructor.“  Útnefninguna hlaut hún eftir að hafa lokið fimmþættu prófi,  sem haldið var á vegum Tollstjóra nýverið, með heildareinkunninni „Outstanding, “ eða framúrskarandi.

„Það að vera komin með alþjóðlega gæðavottun á starfi hundateyma embættisins auðveldar okkur samstarf við aðrar opinberar stofnanir hvað áframhaldandi menntun og þjálfun í opinberri þjónustu varðar,“ segir Ingibjörg Ylfa, spurð um þýðingu þessa áfanga.

Mikil vinna inna hefur verið í gangi hjá Frontex á undanförnum árum við að samræma kröfur sem gerðar eru til hundateyma sem starfa á landamærum Schengen - og Evrópusambandsins.

Reynsla hefur leitt í ljós að erfiðleikum getur verið háð að skipa hundateymi í vinnu í samstarfsverkefnum milli  landa þar sem kunnátta, þjálfun og kröfur til getu leitarhunda  eru mismunandi frá einu landi til annars.

Samtals eru nú 22 manns á útkallslista Frontex og er Ingibjörg Ylfa eini Íslendingurinn sem lokið hefur umræddu námi og er á ofangreindum lista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×