Innlent

Að óbreyttu fækkað um allt að 100 starfsmenn á LSH

Svavar Hávarðsson skrifar
Forsvarsmenn LSH undirbúa sig undir enn einn niðurskurðinn innan spítalans.
Forsvarsmenn LSH undirbúa sig undir enn einn niðurskurðinn innan spítalans. Fréttablaðið/GVA
Fáist ekki frekara fjármagn til reksturs Landspítalans en honum er ætlað í fjárlögum 2015 verður gripið til hagræðingaraðgerða sem þegar eru í undirbúningi innan spítalans. Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarkostnaður spítalans verði lækkaður um 1,5 milljarða króna sem þýðir að starfsmönnum verður fækkað um allt að eitt hundrað. Þar af eru átta af hverjum tíu kvennastörf.

Þetta kemur fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra, við fyrirspurn Björns Vals Gíslasonar, varaþingmanns Vintri grænna, sem spurði um hvaða áhrif er áætlað að frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015 hafi á þróun starfa á undirstofnunum ráðuneytisins. Svar ráðherra var unnið samkvæmt upplýsingum frá LSH vegna fyrirspurnarinnar og var birt á þriðjudag.

Í svarinu segir að ef fjárlög standa óbreytt og nauðsynlegt verði að draga saman rekstrarkostnað þá felist í því „ýmsar breytingar á verkefnum innan spítalans sem nauðsynlegt verður að grípa til [..] en útfærslu hagræðingaraðgerða er ekki að fullu lokið. Miðað við þá vinnu sem nú er í gangi má gera ráð fyrir fækkun stöðugilda á bilinu 70–100 sem gæti skipst eftir kynjum miðað við núverandi kynjahlutföll meðal starfsmanna.“

Jón Hilmar Friðriksson, staðgengill forstjóra LSH, vill ítreka að nákvæm útfærsla hagræðingaraðgerða, komi til þeirra, liggi ekki fyrir. Hann segir að nú þegar sé búið að breyta starfseminni svo mikið í niðurskurði síðastliðinna ára að lengra verði vart gengið. Eins að niðurskurði sem þessum verði ekki náð án þess að fækka starfsfólki, til dæmis með starfsmannaveltu, enda stærsti hluti útgjalda spítalans laun starfsmanna. Því þýði frekari hagræðing fækkun verkefna; færri aðgerðir sem þýðir lengri biðlistar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×