Skoðun

Ábyrgðarlaust dómsvald

Áslaug Björgvinsdóttir skrifar
Síðastliðinn fimmtudag var enn eitt málið frá Héraðsdómi Reykjavíkur ómerkt í Hæstarétti vegna vanhæfis dómara með ómældum kostnaði fyrir okkur skattgreiðendur og aðila máls. Ef dómsvaldið væri banki í eigu okkar allra væru menn auðvitað farnir að ræða ábyrgð stjórnenda, s.s. á verkferlum og gæðamálum. Fyrir liggur að spillingarnefnd Evrópuráðsins (GRECO) beindi þegar árið 2013 tilmælum til íslenskra stjórnvalda m.a. um þörfina á að lagfæra verkferla um íslenska meðdómarakerfið til að forðast hagsmunaárekstra og tryggja heilindi.

Ekkert hefur verið gert og enn eiga sér stað fokdýr mistök í meingölluðu kerfi dómsvaldsins. Hvorki fjölmiðlar né þingmenn hafa óskað eftir að lögbundnir forsvarsmenn dómsvaldsins, s.s. formaður dómstólaráðs eða dómstólaráðherra, svari fyrir ábyrgð og mistök dómsvaldsins. Ekki einu sinni formaður Dómarafélags Íslands, Skúli Magnússon dósent við HÍ. Gagnrýnin umræða um dómsvaldið er hans aðaláhyggjuefni.

Skúli tekur ítrekað að sér kerfisvörn fyrir fjársvelt, illa stjórnað og vanrækt dómskerfi í stað þess sinna því lögbundna hlutverki Dómarafélagsins að standa vörð um sjálfstæði dómara og dómsvaldsins. Hans hlutverk og stjórnar Dómarafélagsins er að berjast fyrir boðlegu skipulagi um dómsvaldið í samræmi við hlutverk þess samkvæmt stjórnarskránni, þ.á.m. fullnægjandi starfsskilyrðum dómara, stoðkerfi þeirra, fræðslu og þjálfun. En það er auðvitað óþægilegt fyrir hann að gagnrýna kerfi sem samanstendur af vinum hans og kollegum í dómstólaráði sem fer með yfirstjórn héraðsdómstólanna.

Í frétt sem birtist á forsíðu Fréttablaðsins á föstudaginn um kostnað vegna vanhæfra dómara segir Skúli, eins og ekkert sé sjálfsagðara: „Það er ljóst að það þýðir bæði kostnað fyrir dómskerfið og þá sem að því koma. En það er auðvitað ekki einsdæmi að dómar séu ómerktir og mál séu endurflutt. Það er náttúrulega þekkt að það gerist og er sá möguleiki hluti af málsmeðferðinni.“

Skúli minnist ekki einu orði á augljósa þörf á úrbótum á ábyrgðarlausu dómsvaldi. Til að halda dómsvaldinu til ábyrgðar þarf m.a. að að breyta lögum á þann veg að málsaðilar njóti sjálfkrafa gjafsóknar frá ríkinu vegna viðbótarmálskostnaðar sem hlýst af endurflutningi mála vegna mistaka dómara.

Það væri til þess fallið að auka aðhald að dómsvaldinu í þeim tilgangi að bæta verkferla, fræðslu og þjálfun dómara og þar með gæði málsmeðferðar fyrir héraðsdómi. Höfundur er héraðsdómslögmaður og fyrrverandi dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×